Eldri nemendur í Ingunnarskóla fá að mæta seinna með góðum árangri Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 26. mars 2015 00:01 Í Ingunnarskóla. Guðlaug Erla Gunnarsdóttir skólastjóri segir það verða skoðað með opnum huga að seinka skóladeginum enn meira. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Að mæta snemma á morgnana í skólann dregur ekki bara úr námsgetu unglinga heldur er það beinlínis skaðlegt heilsu þeirra. Þetta skrifa fimm vísindamenn í aðsendri grein í Sænska Dagblaðinu. Vísindamennirnir vitna í rannsóknir sem gerðar voru við Háskólann í Minnesota í Bandaríkjunum á 9 þúsundum framhaldsskólanema sem sýna að eftir að skóladagurinn hófst klukkan 8.40 í stað 7.50 hækkuðu einkunnir þeirra samtímis því sem þeir sýndu minni merki um þreytu og þunglyndi. Koffínneysla nemanna minnkaði jafnframt. Í Bandaríkjunum byrjar skóladagurinn nú seinna í mörgum skólum. Í Ingunnarskóla í Grafarholti var skóladeginum seinkað hjá nemendum í 6. til 10. bekk síðastliðið haust. Í stað þess að mæta kl. 8.10 byrja þau skóladaginn kl. 8.30. Árangurinn hefur verið góður, að sögn Guðlaugar Erlu Gunnarsdóttur skólastjóra. „Krakkarnir eru alsælir með þetta. Þau koma hressari inn í skóladaginn, kennararnir segja að þau séu betur upplögð til vinnu og mæti frekar á réttum tíma. Það er einnig mikil ánægja í foreldrahópnum með þetta.“ Að sögn Guðlaugar voru nemendur í 10. bekk með hærri einkunnir á samræmdum prófum í haust heldur en í fyrra. „Það er kannski ekki hægt að mæla þetta á milli ára eftir svo skamman tíma en það verður fróðlegt að sjá hver reynslan verður í framhaldinu.“ Kennarar fá einnig meiri sveigjanleika, að því er Guðlaug greinir frá. „Það á við þegar þeir þurfa að koma aðeins fyrr til að undirbúa eitthvað en við gerum þetta fyrst og fremst fyrir krakkana.“ Hugmyndin að því að seinka skóladeginum kom frá fulltrúa foreldra í skólaráði síðastliðið vor. „Viðkomandi hafði lesið um rannsóknir á þessu og það tóku allir vel í þetta í skólaráðinu, ekki síst fulltrúar nemenda.“ Guðlaug segir það hafa verið rætt að seinka skóladeginum enn meira. „Það er að vísu flókið að seinka honum meira út af tómstundum krakkanna síðdegis en það kemur allt til greina. Við skoðum þetta með opnum huga.“Björg ÞorleifsdóttirBjörg Þorleifsdóttir, lektor í lífeðlisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, segir að þó nokkrar rannsóknir hafi leitt í ljós að unglingum henti betur að byrja seinna en fyrr. „Þetta er alltaf tengt lengri svefni en ekki tímasetningunni sem slíkri. Það er talið að unglingar þurfi 9 klukkustunda svefn og alls ekki minna en 8 klukkustunda svefn. Ef þeir byrja í skólanum kl. 8 þurfa þeir að vakna kl. 7. Til að fá 8 klukkustunda svefn þurfa þeir að vera sofnaðir kl. 23. Það er langt frá því að vera normið í þessu samfélagi.“ Kortlagning á svefnvenjum Íslendinga hófst í janúar síðastliðnum, að sögn Bjargar. „Við leggjum mikla áherslu á að skoða aldurshópinn 10 til 20 ára til að sjá hvernig svefnmynstrið er. Við spyrjum um líðan í skóla og um árangur, koffínneyslu og tölvunotkun meðal annars. Við erum að reyna að skoða þetta í samhengi. Því fleiri sem taka þátt þeim mun betri upplýsingar fáum við.“ Björg tekur það fram að hópurinn sem stendur að rannsókninni sé þeirrar skoðunar að mögulega hafi það áhrif að lífsklukkan sé á skjön við staðarklukkuna ásamt fleiri þáttum.
Mest lesið Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Innlent Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Innlent Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Erlent Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Innlent Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi Erlent Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Erlent Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Innlent Fleiri fréttir Óttast að þvingun og nauðung verði færð í lög Andlát til rannsóknar í Bolungarvík Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Lokasprettur æsispennandi kosningabaráttu í Pallborðinu Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Tveir bílar skullu saman í Kolgrafarfirði Ungmenni kveiktu í skólabókum Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Börnin eru fundin Heilablóðfall sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Lending í Nauthólsvík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Erlent
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Erlent