Fluguveiðinördar í hundruða vís hittast Svavar Hávarðsson skrifar 26. mars 2015 06:00 Við þingvallavatn. Vernd ísaldarurriðans verður eitt meginefna málþings um stangveiði og umhverfisvernd. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég er búinn að fá það staðfest að sýningin í Reykjavík er langstærsta RISE-hátíð í heimi. Næst kemst Sidney í Ástralíu með 260 manns. Við verðum með allavega 500 manns hjá okkur í ár,“ segir Kristján Benediktsson, framkvæmdastjóri fluguveiðiferðaskrifstofunnar Iceland Angling Travel (IAT), skipuleggjandi alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar um fluguveiði sem haldin verður í Háskólabíó í kvöld. Kristján, eða Stjáni Ben eins og veiðimenn þekkja hann, hefur staðið fyrir hátíðinni undanfarin ár og ljóst að hún hefur þegar sprengt utan af sér sitt fyrra heimili í Bíó Paradís þar sem 330 manns komu saman í fyrra. Mikið er lagt í hátíðina til að allir njóti hennar sem best; íslenskur texti er með öllum myndunum en þýðingarvinnuna tók forkólfurinn sjálfur að sér. Myndirnar fimm sem verða sýndar eru fullar 100 mínútur - en þær eru valdar eftir einfaldri formúlu. Þær fimm fluguveiðimyndir sem hafa hlotið mestu viðurkenninguna eftir árið eru sýndar. Ein þeirra er frá Íslandi og nefnist Yow - Icelandic for Yes. Þar er veiðimönnum fylgt eftir á bökkum Haukadalsár, Vesturdalsár, Hofsár og á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal. En þá er aðeins fátt eitt talið. Einn frægasti fluguhnýtingameistari heims kemur til landsins og sýnir list sína á stóru sýningarsvæði í anddyri kvikmyndahússins sem nýtt verður undir veiðisýningu áður en sýning myndanna hefst. Þar koma saman fjölmargir sem tengjast fluguveiði á einhvern hátt - sölu veiðileyfa eða búnaðar, auk alls þess sem veiðimaðurinn vill hafa í hverjum túr.Tvinnað saman við veiðisýninguna og RISE kvikmyndahátíðina er málstofa um stangveiði og umhverfisvernd sem kemur fyrst í þessari stórveislu veiðimanna, eða klukkan 17:00. Kvikmyndasýningin sjálf hefst klukkan 20:00. Í málstofunni mun meðal annarra Sveinn Kári Valdimarsson, líffræðingur hjá Landsvirkjun, kynna aðgerðir Landsvirkjunar varðandi verndun Þingvallaurriðans, og væntanlega reifa hugmyndir fyrirtækisins um fiskveg í Efra-Sog. Jóhannes Sturlaugsson, hjá Laxfiskum ehf., mun fjalla um Þingvallaurriðann og hvernig má stuðla að uppgangi hans með hóflegri umgengni en hann hefur rannsakað urriðann um langt skeið. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, mun fjalla um efnahagslegt og samfélagslegt gildi stangveiða, og Valgarður Ragnarsson reifa reynsluna af veiða-og-sleppa í Húseyjarkvísl. Ráðstefnan er á vegum Íslandsdeildar CTCF, Continental Trout Conservation Fund, og mun kynna samtökin stuttlega. Á eftir verður opnað fyrir umræður og fyrirspurnir. Umræðustjóri er Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og verndari ísaldarurriðans til áratuga, er umræðustjóri. „Ég er búinn að bíða í áratugi eftir að Landsvirkjun kynni loks hugmyndir sínar um fiskveg milli Þingvallavatns og Efra-Sogs og bíð spenntur eftir að heyra Svein Kára tala um aðgerðir hennar til að endurreisa ísaldarurriðann,“ segir Össur.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira