Ná ekki að veiða um 50.000 tonn af loðnu Svavar Hávarðsson skrifar 26. mars 2015 07:00 Í Breiðafirði. Hálfur mánuður er liðinn frá því að fréttist af einhverri veiði að ráði. mynd/Örn Rósmann Kristjánsson „
Þetta er á allra síðustu metrunum. Það er lítið sem ekkert að sjá í dag, ætli þetta verði ekki síðasti dagurinn hjá okkur án þess að ég viti það,“ segir Hörður Guðmundsson, skipstjóri á Sigurði VE, sem var á loðnumiðunum inni á Breiðafirði í gærdag í leit að síðustu loðnutonnunum á þessari vertíð. Nú er ljóst að á milli 40 og 50.000 tonn nást ekki af þeim 393 þúsund tonna kvóta sem var gefinn út fyrr í vetur. Spurður um ástæður þess að svo stór hlutur loðnukvótans næst ekki, kemur skýring Harðar mönnum vart á óvart. „Það er bara veðrið. Það er búið að vera hrikalega erfitt veðurfar - eiginlega bara skelfilegt. Ef veður hefði hangið sæmilegt einhverja daga þá hefði verið nákvæmlega ekkert mál fyrir skipin að veiða þennan kvóta,“ segir Hörður en Sigurður VE var ekki einskipa inni á Breiðafirði þegar Fréttablaðið hafði samband. Þrjú önnur loðnuskip voru þá á litlum bletti við leit, en á mánudag rak eitt skip í smá afla. Þannig hefur það verið undanfarið - skip hittir á smá torfu en svo ekki söguna meir. „Það fóru svo fjögur skip norður fyrir land til að leita, inni á Húnaflóa og Eyjafjarðar og á því svæði. Þaðan er ekkert heldur að frétta,“ segir Hörður. Að tilteknum fyrirvörum um ráðstöfun, gengi gjaldmiðla og ástand mörkuðum, eru hver 100.000 tonn almennt um átta milljarða virði. Samkvæmt því sem Hörður skipstjóri á Sigurði VE segir, og að kvótinn hefði náðst án fyrirhafnar ef veður hefði haldið, þá er tap útgerðarfyrirtækjanna sem eiga mikið útistandandi því töluvert. Mat Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er nokkuð lægra, en miðað við að 40 til 50.000 tonn standi óveidd þá sé verðmætið nær 2,5 til þrír milljarðar, en afurðaverð hafa lækkað eftir því sem liðið hefur á vertíðina. Samkvæmt stöðulista Fiskistofu eru það helst þau félög sem eiga stærstu kvótanna sem skilja umtalsvert magn eftir; Ísfélagið í Vestmannaeyjum, Samherji og HB Grandi. Aðeins 22 skip hafa veiðiheimildir loðnu, en áhafnir margra þeirra farnar að huga að næstu verkefnum, ekki síst kolmunnaveiðum en í gær voru tvö íslensk skip þegar við þær veiðar inni í íslensku lögsögunni.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira