Landsvirkjun styrkir viðamikla rannsókn á urriða og bleikju Svavar Hávarðsson skrifar 26. mars 2015 17:30 mynd/landsvirkjun
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar mun styrkja umfangsmikla rannsókn á urriða- og bleikjustofnum á vatnasviði Efra-Sogs, en um er að ræða verkefni undir stjórn prófessors Sigurðar S. Snorrasonar við líffræðiskor Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Þetta kom fram í erindi Sveins Kára Valdimarssonar, líffræðings hjá Landsvirkjun, á málstofu Continental Trout Conservation Fund (CTCF) í Háskólabíói í dag. Sveinn Kári segir að ítarlegra rannsókna sé þörf, áður en ákveðið verði hvort grafa eigi fyrir fiskvegi framhjá Steingrímsstöð, milli Úlfljótsvatns og Þingvallavatns. Steingrímsstöð var byggð á árunum 1954-1959 af Sogsvirkjunum (samstarf ríkis og Reykjavíkurborgar). Byggingin hafði áhrif á urriðann í Efra-Sogi og kemur í veg fyrir að fiskur eigi afturkvæmt úr Úlfljótsvatni upp í Þingvallavatn. Hefur Össur Skarphéðinsson, líffræðingur og þingmaður, talað fyrir því að opnað verði milli vatnanna tveggja með fyrrnefndum fiskvegi. Meginmarkmið verkefnisins verður að fá skýra mynd af stofnerfðabreytileika og erfðatengslum stofna urriða og bleikju á vatnasviði Efra-Sogs. „Það er margt óljóst um möguleg áhrif fiskvegar á lífríkið,“ segir Sveinn Kári. „Til að mynda er óvíst um hver samgangur bleikju var milli vatna fyrir virkjun,“ segir hann. Erfðaefni bleikju hafi alltaf átt greiða leið úr Þingvallavatni niður í Úlfljótsvatn, en ekki sé vitað í hvaða magni það hafi farið í hina áttina. „Í öllu falli er sérstaða Þingvallavatns mikil og nauðsynlegt að fara að öllu með gát, áður en ráðist er í framkvæmdir á borð við þessa,“ segir Sveinn Kári. Landsvirkjun hefur leitast við að halda vatnshæð Þingvallavatns og rennsli sem stöðugustu frá árinu 1984, en þá dró mjög úr sveiflum á vatnsborðinu frá því sem áður var, þegar Þingvallavatn var notað til að miðla vatni til Sogsstöðva. Áður en þær komu til sögunnar einkenndist vatnsborðið af náttúrulegum sveiflum vegna úrkomu og leysinga. Upp úr árinu 1990 hóf Landsvirkjun af halda stöðugu rennsli niður Efra-Sog, í því augnamiði að styðja við endurreisn urriðastofnsins í Þingvallavatni. Þetta hefur aukið lífríki á svæðinu. Þá var komið fyrir hrygningarmöl við bakka báðum megin stíflu og leiddu rannsóknir í ljós að hrygning hófst í Efra-Sogi í kjölfarið. Einnig hefur Landsvirkjun stutt rannsóknir á urriðanum á vatnasvæðinu og seiðasleppingar, en veiði á urriða í Þingvallavatni hefur stóraukist á undanförnum árum og telst stofninn núna sjálfbær. Hugmyndir um fiskveg voru endurvaktar árið 2012 og voru Gunnar Orri Gröndal hjá Verkís og Áslaug Traustadóttir hjá Landmótun fengin til að hanna mögulegan fiskveg. Hönnunarforsendur voru að hann félli vel að umhverfinu, nýttist að hluta til sem hrygningarsvæði fyrirr urriða, flytti nægt vatnsmagn til að uppfylla skilyrði um lágmarksrennsli í Efra-Sogi og væri fær stærri urriða úr Efra-Sogi í Þingvallavatn. Hönnun Gunnars og Áslaugar má sjá á meðfylgjandi mynd.
Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira