Leitar bjargvættarins: Stöðvaði stjórnlausan bíl með vinstri hendi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 29. júlí 2015 14:34 Atvikið átti sér stað við hringtorgið við Korputorg. Vísir/GVA „
Ég skil þetta ekki ennþá. Ég á ekki orð yfir þennan mann, hvað hann var snöggur og að hafa dottið í hug að gera þetta,“ segir Baldvin E. Albertsson. Hann leitar að manninum sem tókst að stöðva bíl hans með vinstri hendi þegar bíllinn rann mannlaus afturábak eftir Vesturlandsvegi. Málið er hreint út sagt ótrúlegt en málavextir eru þeir að á laugardag um fjögur eða fimmleytið er Baldvin að keyra heim til sín í Mosfellsbæ. Hann ákveður að stöðva nálægt hringtorginu við Korputorg á Vesturlandsvegi til þess að teygja úr fótunum. „Ég er svolítið veikur í fótunum og stöðva bílinn í vegarkantinum. Það var skipt á hné á hægri fæti og ég verð stundum svolítið þreyttur að sitja í sömu stellingunni. Síðan set ég í bakkgír og bakka aðeins til að staðsetja mig betur í vegarkantinum.“ Að því loknu snýr Baldvin sér við og situr með báða fætur út úr bílnum.Baldvin biður manninn að hafa samband.Vísir/BaldvinGleymdi að taka bílinn úr bakkgír „Ég hef sjálfsagt gleymt að setja hann í park og hann er enn í bakkgírnum. Þar sem ég sit í sætinu með fæturna út úr bílnum þá fer hann bara af stað,“ rifjar Baldvin upp og á ekki orð yfir klaufaskapinn í sjálfum sér. „Bíllinn hendir mér út þannig að bíllinn rennur mannlaus af stað með dyrnar opnar.“ Baldvin segist hafa reynt að hlaupa á eftir bílnum en að það hafi reynst honum, 72 ára gömlum, erfitt. „Hurðin er alltaf opin og mig vantaði að komast fram fyrir hurðina inn í bílinn. Allt í einu sé ég bíl stoppa í kantinum, mann rífa upp hurðina og hlaupa í áttina til mín. Hann stekkur inn í bílinn minn og setur vinstri hönd á bremsuna.“ Baldvin segir Usain Bolt mega vara sig þar sem maðurinn hafi þurft að hlaupa ansi hratt til að ná bílnum. „Guð minn góður ef bíllinn hefði farið út á veg. Hann keyrði beint afturábak og ef hann hefði keyrt út á veginn hefði það getað valdið stórslysi,“ segir Baldvin sem enn á ekki orð yfir afrek mannsins. Hann vill gjarnan ná af honum tali og þakka fyrir aðstoðina og lýsir því eftir honum.Í fullkomnu sjokki og náði ekki nafninu „Ég er nefnilega í hálfgerðu sjokki eftir þetta, sest inn í bílinn og hann kemur og klappar mér í bak og fyrir; spyr hvort það sé ekki í lagi með mig og svona en rauk svo af stað. Ég náði ekki að spyrja hann hvað hann hét eða neitt, rétt náði að kalla á eftir honum þakkarorð. Hann var að flýta sér eins og hann gat, líklega vegna þess að hann hafði skilið bílinn sinn eftir í kantinum.“ Baldin á erfitt með að lýsa manninum en segir hann hafa verið meðalmann á stærð og einhvers staðar á milli tvítugs og þrítugs. „Mig langar svo að hafa upp á þessum manni.“ Baldvin deildi sögunni á Facebook í flýti en færslu hans má sjá hér að neðan. Hann gefur upp símanúmerið sitt og biður þá sem hafa upplýsingar um mál hans um að hafa samband.Vinir og vandamenn á facebook mig langar að biðja ykkur um að hjálpa mér dálítið sem getur verið mikilvægt fyrir mig og...Posted by Baldvin E. Albertsson on Tuesday, July 28, 2015
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira