SA býður 47 þúsund á móti sveigjanlegum dagvinnutíma Heimir Már Pétursson skrifar 8. maí 2015 11:32 SA býður Starfsgreinasambandinu 23,5 prósenta launahækkun sem er sama prósenta og flugmenn fengu ú desember. Vísir
Samtök atvinnulífsins mótmæla því að tilboð þeirra til Starfsgreinasambandsins um 23,5 prósenta hækkun launa sé blekking, eins og framkvæmdastjóri sambandsins hafi fullyrt. Þetta sé hæsta tilboð sem Samtökin hafi nokkru sinni boðið og hærra en allar samningsniðurstöður frá því á tímum óðaverðbólgu á níunda áratugnum. Starfsgreinasambandið krefst þess að lágmarkslaun hækki upp í 300 þúsund krónur á næstu þremur árum, eða um 33 þúsund á ári og þar af leiðandi 99 þúsund á samningstímanum. Í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins segir að þau hafi lagt fram tilboð um 23,5% hækkun dagvinnulauna á þriggja ára samningstíma í kjaraviðræðum við Starfsgreinasambandið, sem þýðir að mánaðarlaunin myndu hækka um 47 þúsund krónur á samningstímanum. Á móti vilja Samtök atvinnulífsins að átta stunda dagvinnutími geti rúmast innan lengri tíma dagsins og yfirvinnuálag verði lækkað umtalsvert. Í tilkynningu SA segir að með þessu yrðu launakerfin færð nær því sem tíðkast í nágrannalöndum okkar, þar sem vinnutímareglur séu mun sveigjanlegri en hér tíðkist og yfirvinnugreiðslur séu hverfandi.Í Fréttablaðinu í dag heldur Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, því fram að tilboðið sé blekking en því fer fjarri að mati SA. Tilboðið feli í sér raunverulegar kjarabætur. Meðaldagvinnulaun myndu hækka úr 260 þús.kr. á mánuði í 320 þús.kr. eða um 60 þús.kr. krónur og meðaldagvinnulaun fiskvinnslufólks úr 290 þús.kr. á mánuði í 360 þús. kr., eða um 70 þús. kr. Þá hafi SA einnig boðið sérstaka hækkun lágmarkstekjutryggingar fyrir fulla dagvinnu sem næði 280 þús.kr. á mánuði í lok samningstímans. Í tilkynningu SA segir að tilboð samtakanna til Starfsgreinasambandsins sé hærra en samtökin hafa nokkru sinni lagt fram frá stofnun þeirra. Jafnframt sé tilboðið hærra en allar samningsniðurstöður í kjarasamningum frá því á tímum óðaverðbólgunnar á níunda áratugnum. Þess er hins vegar ekki getið að þetta er sama prósenta og laun flugstjóra voru hækkuð um í samningum við Icelandair í desember. Ef tilboði SA yrði tekið, og það tækist að viðhalda efnahagslegum stöðugleika, segir SA að það yrðu mestu kaupmáttarsamningar síðustu áratuga.
Mest lesið Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Maðurinn fundinn Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Innlent Fleiri fréttir Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Sjá meira