Skipstjóra láðist að ræsa sjálfvirkan ferilvöktunarbúnað Jóhann Óli Eiðsson skrifar 7. ágúst 2015 17:54 Þyrlusveitir gæslunnar hafa verið á fullu í dag. vísir/vilhelm
Mikið álag hefur verið á þyrlusveitum Landhelgisgæslunnar í dag. Síðan klukkan fimm í nótt hafa þyrlurnar farið í alls fimm útköll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Um klukkan fimm í nótt voru þyrla og varðskip kölluð út til að leita að línuskipi norður af landinu en skipið hafði horfið úr sjálfvirkri ferilvöktun. Er ekki náðist samband við skipið voru þyrla og nærliggjandi skip send á síðasta þekkta stað. Skipið fannst um klukkan tíu en skipstjóri þess hafði gleymt að ræsa ferilvöktunarbúnað fyrir viðkomandi hafsvæði og ekki hlustað á neyðarrásir. Mál hans verður rannsakað af lögreglu. Á leiðinni heim að norðan var óskað eftir þyrlu í farþegaskip um 170 sjómílur suðaustur af Vestmannaeyjum. Skömmu síðar kom önnur beiðni frá skemmtiferðaskipi og þess að auki hafa þyrlurnar verið kallaðar út í tvö önnur mál í dag. Nú fyrir skemmstu var Björgunarsveitin Blakkur á Patreksfirði kölluð út vegna tveggja göngumanna sem hugðust ganga upp á fjallgarðinn milli Patreks- og Tálknafjarðar. Þeir lentu hins vegar í sjálfheldu. Þeir gátu gefið góðar upplýsingar um staðsetningu sína og er talið að þeir séu í Hlíðardal, um fjórum kílómetrum fyrir utan Patreksfjörð. Björgunarmenn eru á leið til þeirra. Veðurfar er með besta móti á svæðinu sem stendur en óvíst er hvernig aðstæðurnar hjá mönnunum eru. Ekki er vitað hve langan tíma björgunarstörf munu taka.
Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sjá meira