Dagur segir sundlaug fyrir fötluð börn nauðsyn snærós sindradóttir skrifar 5. ágúst 2015 07:00 Mikið ónæði er af jarðvegsvinnunni sem nú fer fram við Klettaskóla. Verktakar hafa ekki staðið við umsaminn fjölda sprenginga. vísir/andri marínó
Borgarstjóri segir uppbyggingu við Klettaskóla, áður Öskjuhlíðarskóla, löngu tímabæra. Gamla húsnæðið endurspegli ekki nýjar áherslur í uppeldi og menntun fatlaðra barna. Í Fréttablaðinu í gær sagði íbúi í næsta nágrenni við Klettaskóla frá óánægju sinni og annarra íbúa í hverfinu með uppbyggingu við skólann. Hún segir samráð við íbúa hverfisins hafa verið í algjöru lágmarki. Þá hafi verið byrjað að sprengja fyrir grunni byggingarinnar þann 21. júlí síðastliðinn og að nú þegar hafi myndast margar sprungur í hús hennar. „Það var reynt að taka mið eins og hægt var af þeirri gagnrýni sem við fengum en okkur er alveg ljóst að það eru ekki allir á eitt sáttir,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. „Það hefur staðið til áratugum saman að byggja við Klettaskóla vegna þess að viðhorfin og sjónarmiðin til kennslu og uppeldis fatlaðra barna eru gjörbreytt. Þarna er verið að fara í betrumbætur á aðbúnaðinum, verið að tryggja að það sé íþróttaaðstaða og sundaðstaða innan seilingar.“ Byggja á fullbúið íþróttahús og tvær innisundlaugar fyrir börnin. Þá á að bæta við félagsaðstöðu barnanna. „Það er mjög mikið mál fyrir fjölfötluð börn að fara úr húsi og vera keyrð annað í þann hluta skólastarfsins. Eftir talsvert mikla yfirlegu var þessu komið fyrir þarna á lóðinni með viðbyggingum,“ segir Dagur. Hann segir miður að íbúar í kring upplifi að borgin hafi ekki átt í nægu samráði við þá varðandi framkvæmdina. „Auðvitað veldur þetta ónæði á verktímanum, en það er mikilvægt að standa eins vel og hægt er að því. Það er búið að fara vel í gegnum það með foreldrum og aðstandendum en mér þykir mjög miður ef það hefur ekki gengið eins vel gagnvart íbúunum.“Vísir
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Sjá meira