Innlent

Leggja fram sameiginlega kröfugerð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristín Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands, Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna og Árni Stefán Jónsson, formaður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu.
Kristín Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands, Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna og Árni Stefán Jónsson, formaður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu. mynd/aðsend
Þrjú stærstu félögin innan BSRB sem semja við Ríkið hafa tekið höndum saman og leggja fram sameiginlega kröfugerð í komandi kjarasamningsviðræðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SFR.

Um er að ræða SFR stéttarfélag í almannaþjónustu sem semur fyrir um 3500 starfsmenn, Landssamband lögreglumanna með rúmlega 600 starfsmenn og Sjúkraliðafélag Íslands með um 1100 starfsmenn hjá ríkinu.

„Núverandi aðstæður á vinnumarkaði kalla á sterka viðspyrnu gagnvart viðsemjenda og telja forsvarsmenn félaganna að sá styrkur sem af samstarfinu fæst muni nýtast vel í viðræðunum framundan. Eins og staðan er í dag er líklegra en ekki að til aðgerða þurfi að grípa til að ná fram kröfum félaganna. Enda hafa fulltrúar ríkisins hvorki talað fyrir miklum hækkunum né leiðréttingum á launum ríkisstarfsmanna undanfarna mánuði,“ segir í tilkynningunni.

Í næstu viku munu fulltrúar úr samninganefndum félaganna þriggja hitta samninganefnd ríkisins hjá sáttasemjara og leggja fram hugmynd að viðræðuáætlun.

Kröfugerð SFR stéttarfélags, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna verða kynnt á sameiginlegum blaðamannafundi í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×