Ætlar að flytja vegna skotárása í Gautaborg Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 19. mars 2015 20:30
Sænska lögreglan leitar nú tveggja árásarmanna sem skutu tvo til bana í Gautaborg í gærkvöldi og særðu á annan tug. Íslensk kona búsett í grennd við árásarstaðinn segir að mikil hræðsla hafi gripið um sig á svæðinu. Árásin var gerð á veitingastað í Biskopsgården-hverfinu í Gautaborg í gærkvöld, þar sem fjöldi fólks var að horfa á fótboltaleik í sjónvarpinu. Að sögn sjónarvotta ruddust tveir grímuklæddir menn inn á staðinn og hófu skothríð með þeim afleiðingum að tveir menn á þrítugsaldri létust, auk þess sem fimmtán særðust, þar af þrír alvarlega. Árásarmannanna er nú leitað en þeim tókst að flýja af vettvangi. Lögregla útilokar að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða, en telur nær öruggt að árásin tengist glæpagengjum sem hafa verið umsvifamikil í þessu hverfi. Unnur Edda Hjörvar býr nálægt veitingastaðnum þar sem árásin átti sér stað, og hefur margoft setið þar sjálf. Hún segist vera skelfingu lostin eftir atburðina, þó hún hafi áður orðið vör við glæpagengi á svæðinu.„Ég fór þarna á leiðinni í vinnuna og þá var lögreglan út um allt ennþá, og það lá látinn maður á torginu í alla nótt. Þetta er bara hræðilegt og öllum líður mjög illa,“ segir hún.Unnur segir fólki mjög brugðið og ætlar hún að flytja vegna árásarinnar, eftir að hafa búið í hverfinu í fjórtán ár.„Já ég er búin að ákveða það, mér var mjög brugðið. Ég hef aldrei verið hrædd hérna fyrr en núna,“ segir hún.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Fleiri fréttir Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Sjá meira