Vonlaus staða ungs fólks á Íslandi Jakob Bjarnar skrifar 29. maí 2015 12:32 Það kemur Gunnari Smára ekki á óvart að ungt fólk hafni gamalgrónum stjórnmálaflokkum.
Gunnar Smári Egilsson blaðamaður situr úti í Frakklandi og reiknar og reiknar og hefur nú komist að því, með því að rýna í tölur frá Hagstofunni, að ungt fólk hefur farið miklu verr út úr Hruninu en aðrir aldurshópar. Staða þess er reyndar vonlaus, sé litið til útreikninga Gunnars Smára. Í gær birti Gunnar Smári grein þar sem hann telur það stappa nærri sturlun af ráðamönnum þjóðarinnar að tala um að staða almennings sé með besta móti – það standist enga skoðun og nú beinir hann sjónum sínum að kjörum ungs fólks í grein sem hann birtir á bloggi sínu.Ungu fólki haldið frá á vinnumarkaði Gunnar Smári segir að ungt fólk hafi tapað mestu á Hruninu, talsvert meiru en þeir sem eru miðaldra og eldri: „Ef við skoðum tekjur fólks á aldrinum 25 til 39 ára samkvæmt úttekt Hagstofunnar á skattaskýrslum frá 2007 til 2013; kemur í ljós að þessi aldurshópur þurfti að þola meira fall í atvinnutekjum eftir Hrun en aðrir hópar. Atvinnutekjur ungs fólks á þessum aldri drógust saman um 26 prósent frá 2007 til 2013 á meðan atvinnutekjur fólks á aldrinum 40 til 49 ára drógust saman um 15 prósent og fólks á aldrinum 50 til 66 ára um 15 prósent einnig. Atvinnutekjur fólks 67 ára og eldri jukust á sama tíma um 4 prósent. Hrunið fékk eldra fólk til að fresta starfslokum og vera lengur á vinnumarkaði.“ Gunnar Smári segir ungt fólk ekki komast inn á vinnumarkaðinn, því var frekar sagt upp vegna minni starfsreynslu og laun ungs fólks voru lækkuð meira en annarra. „Hrunið lék ungt fólk á aldrinum 25 til 39 ára svipað og ungmenni 24 ára og yngri. Atvinnutekjur ungmenna drógust líka saman um 26 prósent frá 2007 til 2013.“Ungt fólk situr eftir í tekjum Og svo áfram sé vitnað í grein Gunnars Smára segir þar að samdráttur í atvinnutekjum ungs fólks eftir Hrun „var svo mikill að segja má að því hafi verið varpað aftur á síðustu öld. Á verðlagi dagsins voru meðal atvinnutekjur ungs fólks á aldrinum 25 til 39 ára samkvæmt skattaskýrslum tæplega 402 þúsund krónur á mánuði 2013. Það er aðeins 4 þúsund krónum hærra en þessi aldursflokkur hafði í atvinnutekjur árið 1997. Þessi sautján ár sem Hagstofan hefur skoðað hafa því ekki skilað ungu fólki neinum kjarabótum. Fólk sem er 39 ára í dag getur horft aftur til þess tíma þegar það var 22 ára og séð að ungt fólk er meira og minna enn með sömu tekjurnar. Á sama tíma hafa atvinnutekjur yngra miðaldra fólks, fólks á fimmtugs aldri, hækkað um 20 prósent og atvinnutekjur eldra miðaldra fólks, fólks á milli fimmtugs og ellilífeyrisaldurs, hækkað um 25 prósent.“Ungt fólk illa svikið af eldri kynslóðum Gunnar Smári segir, í grein sinni sem er ítarleg en þar er jafnframt farið yfir eignastöðu ungs fólks í samanburði við aðra hópa, það fyrirliggjandi að samfélagið hafi þannig svikið ungt fólk um þær kjarabætur sem aðrir aldursflokkar náðu fram í góðæristímum fyrir aldamótin og í aðdraganda Hrunsins og sem því tókst að verja í kreppum og hrunum þess á milli. „Og munurinn er mikill. Fyrir ungt fólk með meðaltekjur síns aldurshóps gera þetta 100 til 125 þúsund krónur á mánuði, 1,2 til 1,5 milljón krónur á ári, sem það hefði í tekjur í dag ef það hefði haldið í við sér eldra fólk. Það munar um minna. Einkum á erfiðum tímum. Um aldamótin voru atvinnutekjur ungs fólks á aldrinum 25 til 39 ára 74 prósent af atvinnutekjum yngra miðaldra fólks (40-49 ára) en þær eru í dag ekki nema 61 prósent af launum yngra miðaldra fólks. Um aldamótin voru atvinnutekjur ungs fólks á aldrinum 25 til 39 ára 85 prósent af atvinnutekjum eldra miðaldra fólks (50-66 ára) en eru í dag ekki nema 68 prósent af launum eldra miðaldra fólks.“ Öldin og samfélagið, þar sem hinir eldri ráða för, hafa svikið ungt fólk á atvinnumarkaði. Annað hvort kemst það ekki að eða vinnur fyrir sífellt lægri laun en miðaldra og eldra fólk. „Árið 2013 var staðan sú að meðal atvinnutekjur ungs fólks voru 402 þúsund krónur á mánuði á meðan meðal atvinnutekjur yngra miðaldra fólks voru 656 þúsund krónur og meðal atvinnutekjur eldra miðaldra fólks 588 þúsund krónur á mánuði.“
Mest lesið Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Erlent Fleiri fréttir Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Sjá meira