Fá ekki nauðsynlega bráðaþjónustu 10. febrúar 2015 07:00 Heiðdís Dögg Eiríksdóttir
Landlæknir tók nýlega á móti erindi frá Félagi heyrnarlausra þar sem hann er beðinn um að minna á rétt heyrnarlausra til heilbrigðisþjónustu. Þess eru dæmi að heyrnarlausum sé vísað frá þegar þeir mæta á síðdegisvakt hjá heilsugæslunni eða á bráðamóttökuna. Heiðdís Dögg Eiríksdóttir, formaður Félags heyrnarlausra, segir vandann ekki felast í fjárskorti heldur viðhorfi til heyrnarlausra. „Svörin sem við höfum fengið eru að sjúklingar eigi að panta tíma en ekki nýta sér síðdegisvakt eða bráðaþjónustu. En við höfum sama rétt og aðrir sjúklingar til að sækja okkar þjónustu, sama hvort það er á dagvinnutíma, síðdegisvakt eða á bráðaþjónustu. Það er ekki skortur á fé vegna túlkaþjónustu í heilbrigðisþjónustunni. Það er aðallega þörf á að laga viðhorfið.“Rétturinn er skýr Heiðdís bendir á réttinn til bestu mögulegu læknisþjónustu og rétt heyrnarlausra til að fá túlk. „Sjúklingar eiga ekki að þurfa að berjast fyrir, útskýra og hamast í því að fá túlkaþjónustu. Heilbrigðisstéttin á að tryggja þetta og heilbrigðisstarfsfólk þarf að gæta þess að líta á túlkaþjónustuna sem sjálfsögð mannréttindi, ekki líta á sjúklinga með einhvern verðmiða, eða meta það hvort sjúklingur þurfi túlk eða jafnvel ýta undir að þetta gangi upp með varalestri, skrifa saman á blað. Það eru ekki eðlileg samskipti.“ Heiðdís segir það jafnvel hafa komið fyrir að læknir samþykki ekki túlk í viðtölum við sjúklinga. „Við höfum ítrekað þurft að hafa samskipti og minna heilbrigðisstéttina á mikilvægi þess að sjúklingur á rétt á túlkaþjónustu. Það hefur komið fyrir að læknir samþykki ekki túlk í viðtölum. Heiðdís segir svör sem heyrnarlausir fá þegar þeir leita heilbrigðisþjónustu brjóta á rétti þeirra. Skortur á túlkaþjónustu hefur komið niður á heilbrigðisþjónustu til þeirra. „Rannsóknir sýna að heyrnarlausir útskrifast síðar en fólk með fulla heyrn, sem þýðir að þeir eru ekki að fá meðferðarúrræði á sínum forsendum. Fagfólk skortir þekkingu á þeirra menningarheimi og hefur ekki þekkingu á íslensku táknmáli.“Kolbrún Völkudóttir sagði frá því í viðtali við Fréttablaðið að brotið hefði verið á rétti hennar til réttrar læknisþjónustu á barna -og unglingageðdeild. Fréttablaðið/ ErnirLæknamistök á BUGL Á sautjánda ári lagðist Kolbrún Völkudóttir inn á BUGL og dvaldi þar um margra mánaða skeið vegna þunglyndis og kvíða. Kolbrún er heyrnarlaus en með kuðungsígræðslu og heyrnarskerðing hennar er veruleg. Í viðtalið í helgarblaði Fréttablaðsins lýsti Kolbrún læknismeðferð sinni á BUGL og gagnrýndi að ekki hefði verið tekið tillit til heyrnarleysis hennar. „Á BUGL var ég sett á sterk lyf sem báru ekki tilætlaðan árangur. Ég reyndi að tjá mig, gerði tilraunir til að fá athygli en enginn skildi mig og enginn notaði táknmál,“ sagði Kolbrún um vist sína á spítalanum. „Þessi lyfjagjöf var að mínu mati ákveðin læknamistök.“ Ólafur Guðmundsson, yfirlæknir á BUGL, segist ekki geta tjáð sig um einstaka sjúklinga en segir þó að táknmálstúlkur sé ávallt fenginn að meðferð heyrnarskerts fólks. „Við fáum alltaf táknmálstúlk í þessum tilvikum og ég geri fastlega ráð fyrir að það hafi líka verið gert þá.“ Aldrei bein samskipti Kolbrún útskýrir að þótt túlkur komi og aðstoði í viðtölum þá verði aldrei bein samskipti við lækna. „Það kom túlkur í viðtölum en það verða aldrei bein samskipti við læknana. Það hefði átt að senda mig á meðferðarstað þar sem talað er á mínu máli, táknmáli.“ Hún segir þrjú ár hafa liðið þar til hún var send til Svíþjóðar í sérmeðferðarúrræði fyrir heyrnarlausa. Fjölskylda hennar lagði fram stjórnsýslukæru vegna læknismeðferðar hennar hér á landi. „Það gerði það að verkum að meðferðin fyrir mig úti var borguð úr ráðherrasjóði en það tók þrjú ár að fá það í gegn. Mér finnst hafa verið brotið á mér. Ég er ekkert að setja út á starfsfólkið, það vann vel og reyndi sitt besta en við töluðum ekki sama tungumálið.“Vanmáttug yfirvöld Heiðdís Dögg segir atvik sem þessi reglulega koma til kasta samtakanna. „Þetta er nokkuð sem er að koma upp þrátt fyrir lög um réttindi sjúklinga, 5. gr. sem kveður á um að sjúklingur eigi rétt á túlkaþjónustu ef hann talar ekki íslensku eða notar táknmál.“ Heiðdís nefnir enn fleiri dæmi um atvik þar sem Félag heyrnarlausra hefur þurft að beita sér. „Það hefur t.d. komið fyrir í áfengismeðferð SÁÁ, og sér í lagi í geðheilbrigðisþjónustunni. Við hjá Félagi heyrnarlausra höfum fengið þau tilmæli frá félagsþjónustu og geðheilbrigðissviði að þau séu vanmáttug þegar að þessu kemur.“
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira