Bjarni Bernharður sakar Forlagið um aumingjaskap Jakob Bjarnar skrifar 10. febrúar 2015 10:09 Bjarni er verulega ósattur við að Forlagið en Egill Örn segir að dag hvern berist bókaútgáfunni handrit sem menn vilja gefa út.
Rithöfundurinn Bjarni Bernharður Bjarnason, geðsjúkur morðingi (eins og hann kallar sig í mikilli ádrepu), fordæmir Forlagið og framkvæmdastjóra þess; Egil Örn Jóhannsson en bókaútgáfan hafnaði handriti sem hann sendi inn, og sakar um aumingjaskap. Handrit Bjarna tekur á málum sem hafa verið í deiglunni fjölmiðaumræðunni undafarna ártugi, eins og geðsjúkdómum, vímuefnaneyslu, einelti og stöðu barns sem skólakerfið hafnar og svo framvegis og svo sjónarhorn Bjarna á þessi mál. Bjarni segir það einstakt vegna þess að það byggir á eigin reynslu. „Í handritinu, sem er einstakt í sinni röð, meðal annars vegna þess að það er mjög sjaldgæft í veröldinni að maður hafi lifað það fara í gegnum níu geðklofaköst og sé til frásagnar á eftir,“ segir Bjarni í harðorðri yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni.Klíkuskapur og undirlægjuhátturBjarni Bernharður hann velkist hvergi í vafa um hvað ræður því að Forlagið vill ekki gefa út bók hans. Það er maðurinn ekki bókin. „En, svei, ég hef skömm á útgefendum sem þora ekki fyrir sitt litla líf að taka áhættu, yfirleitt skömm á íslenskum bókmenntaheimi sem stjórnast af klíkuskap og undirlægjuhætti. Ég er þó ekki í neinu stríði við útgefendur eða bókmenntafræðinga. Þó vil ég segja þér að ég hef sterkan aðgang af fjölmiðlum og mun hiklaust greina frá því hversu lítilsigld ritstjórnastefna Forlagsins er. Að það hafi ekki þorað að gefa út handrit eftir BBB (geðsjúkan morðingja), að það hafi ekki þorað að standa með BBB, að það hafi ekki þorað að gefa út handrit eftir BBB vegna þess það hafði að geyma OF MIKINN SANNLEIK. Ég hef ekki sagt mitt síðasta í íslenskum rithöfundarheimi og mun reynast mörgum erfiður ljár í þúfu áður en yfir líkur. Hvers vegna þá? Vegna þess að ég MAÐUR SANNLEIKANS og það eitt kallar á harða gagnrýni yfir menn og málefni á Íslandi.“Fjölda handrita hafnaðEgill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, vill ekki tjá sig mikið um þetta mál. En segir þó: „Hingað koma að jafnaði meira en handrit á dag, hvern dag ársins og það gefur augaleið að Forlagið getur ekki tekið allt til útgáfu sem hingað berst.“En Bjarni vill meina að þetta snúist um manninn, ekki bókina? „Ég ætla ekki að skattyrðast við Bjarna Bernharð um hvers vegna við höfnuðum handritinu.“ Innlegg frá Bjarni Bernhardur Bjarnason.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Sjá meira