Íslendingar þurfi að læra að ráðast á málefni frekar en manneskjuna sjálfa Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. febrúar 2015 14:41
Íslendingar þurfa að vera jákvæðari. Þeir þurfa að læra að ráðast á málefni frekar en manneskjuna sjálfa og það gæti verið að það þurfi heila kynslóð til að breyta þankagangi þjóðarinnar. Þetta segir dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir, kennari við Colombia háskólann í New York.Aðgát skal höfð í nærveru sálar Inga ræddi hin ýmsu mál í þættinum Ísland í dag í gærkvöld. Til að mynda menntakerfið, fjölskylduna og muninn á Ameríku og Íslandi en Inga Dóra hefur ákveðnar skoðanir á hugarfari Íslendinga. „Við erum að leita held ég. Við misstum trúna og traustið á ýmsum stofnunum samfélagsins. Ég hef til dæmis ekki getað fylgst með íslenskum fjölmiðlum eftir hrun vegna þess að mér finnst umræðan svo gagnrýnin. Ég veit að það er fínt að vera gagnrýninn en hún verður að vera á málefnalegum forsendum og byggð á þekkingu. Finnst oft allt of neikvæður tónn,“ segir hún. Aðgát skal höfð í nærveru sálar er hugtakið sem hún biður fólk um að hafa hugfast. Ekki sé hægt að búa í þjóðfélagi þar sem í lagi telst að stimpla alla þá sem aðrar skoðanir hafa en maður sjálfur fífl og fávita.Hljótum að finna okkur aftur „Við erum búin að tapa okkur en við hljótum að finna okkur aftur. Við erum hrædd við þá sem eru með aðrar skoðanir og við eigum langt í land. Ég held að við séum að hræra dálítið í gildunum okkar og velta fyrir okkur hverju við eigum að halda og hvernig við eigum að halda áfram í samfélaginu.“ Inga Dóra hefur þó mikla trú á unga fólkinu og gerir ráð fyrir að allt muni þetta leiðréttast með þeirra kynslóð. „Ég held að þetta sé kynslóð sem komi til með að meta aðra hluti. Það sem hefur verið svona svolítið fléttað fyrir okkur að átta okkur á, er að krakkarnir, unglingarnir – við erum með þetta í rannsóknunum – við sjáum að þau eru jafnvel í betri stöðu en á uppgangstímanum. Þeim líður betur og þau verja meiri tíma með foreldrum sínum,“ segir hún og bætir við að krakkar þroskist hægar en áður. „Sem ég held að sé eðlilegt. Ég held að þetta sé ákveðin þróun í því að ævin er að lengjast svo mikið. Hún er að lengjast þannig að ef við horfum á síðustu áratugi þá hefur orðið svo veruleg breyting, þannig að stór hluti þeirra krakka sem eru fæddir í kringum árið 2000 geta vænst þess að verða 100 ára.“ Viðtalið við Ingu Dóru má sjá í heild í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Sjá meira