Veiðigjöldin verða óbreytt kolbeinn óttarsson proppé skrifar 18. mars 2015 08:00 Sjávarútvegsfyrirtæki hafa skilað miklum hagnaði og stefnir í það sama á þessu ári. Þar skiptir góð loðnuveiði miklu. Fréttablaðið/Hari
Frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um veiðigjöld er tilbúið til framlagningar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er gert ráð fyrir óbreyttu veiðigjaldi. Ekki er þó ljóst hvort óbreytt gjald vísi til sömu heildarupphæðar eða óbreyttrar krónutölu á tegundir. Á þessu tvennu er reginmunur, þar sem leiða má líkur að því að óbreytt krónutala á tegundir myndi skila hærri heildarupphæð veiðigjalda til ríkissjóðs í takti við aukið aflamagn og þá sérstaklega í uppsjávartegundum eins og loðnu. Heimildum ber ekki saman um hvort frumvarpið verður til bráðabirgða eða varanleg lausn, en vilji ráðherra stendur til hins síðarnefnda. Tíminn er hins vegar naumur, en leggja verður fram frumvörp fyrir mánaðamót. Mikil leynd hvílir yfir efni frumvarpsins og óskum Fréttablaðsins um viðtal við ráðherra vegna málsins var hafnað. Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, sagðist ekkert vita hver staðan væri og vísaði á ráðherra. Tíminn sé þó að renna út ef eigi að setja varanleg lög. „Málið þarf þó að koma fram fljótlega ef við ætlum að fá endanlegan frágang í því. Það er alveg ljóst.“ Upphaflega átti frumvarp um veiðigjöld að vera hluti af breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu, en ráðherra hætti við að leggja fram frumvarp um þau. Því þarf að framlengja bráðabirgðaákvæði um veiðigjöldin, náist ekki að setja þeim ný lög. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir illa haldið á málum sé málið ekki komið lengra. Hún kvartar yfir algjörum skorti á samráði. „Samráðsnefnd um veiðigjöld, sem er þingkosin nefnd sem var kjörin í nóvember á síðasta ári, hún hefur ekki haft neina aðkomu að þessu máli og er okkur farið að lengja eftir því hvað þarna er á ferðinni. Þetta hefur ekkert komið inn á borð til okkar. Það er svo sem í stíl við annað hjá þessari vesalings ríkisstjórn, að gera þetta svona á handarbakinu.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira