Hefur ekki heyrt frá Fatímu í fjögur ár kristjana björg guðbrandsdóttir skrifar 18. mars 2015 07:30 Jóhanna hefur ekki haft neinar fregnir af Fatímu síðan stríðið hófst en vonar það besta. Fréttablaðið/Vilhelm
Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöfundur og fyrrverandi blaðamaður, hitti fjórtán ára gamla stúlku, Fatímu, í ferðalagi sínu til Jemens fyrir meira en áratug. Þá safnaði hún efnivið í bók sína Arabíukonur. Metnaður stúlkunnar hreif Jóhönnu en Fatíma reyndi að læra ensku af sjálfsdáðum því skóli hafði verið lagður niður í samfélagi hennar vegna fátæktar. Árið 2005, þegar Jóhanna hlaut verðlaun Hagþenkis fyrir Arabíukonur, fannst henni kjörið að nota hluta af peningaverðlaununum til að stofna sjóð til að aðstoða jemenskar stúlkur. „Þetta voru 350 þúsund krónur, sem nýttust betur í Jemen en hér á Íslandi. Það var byrjunin og þetta er búið að vaxta sig afskaplega vel,“ segir Jóhanna en nú tíu árum seinna hefur hún safnað tugum milljóna til bágstaddra í Miðausturlöndum og Afríku. Nú síðast 15 milljónum í söfnun sjóðsins og UNICEF til þess að efla menntun sýrlenskra barna sem flúið hafa til Jórdaníu.Þar í landi eru fleiri en 220.000 flóttabörn á skólaaldri. Mörg þeirra sækja skóla í flóttamannabúðum þar sem þau búa eða í almenningsskólum í Jórdaníu. Skólarnir eru hins vegar að verða yfirfullir og fleiri en 60.000 börn njóta hvorki formlegrar né óformlegrar menntunar. „Ætli það séu ekki nokkrir tugir milljóna sem við höfum safnað,“ segir hún en árið 2013 safnaði sjóðurinn 10 milljónum fyrir sjúkrahúsi og árið 2012 safnaði hann fimm milljónum til stuðnings hjálparstarfi Rauða hálfmánans í Sýrlandi. Árið 2008 söfnuðust 18,2 milljónir króna á glæsimarkaði sem haldinn var í Perlunni. Markaðurinn var haldinn til stuðnings uppbyggingu skóla fyrir börn og konur í Jemen. Í dag er Fatíma orðin 25 ára gömul og Jóhanna hefur ekki heyrt í henni í fjögur ár. Hún vonar að hún hafi komist af. „Ég hef ekkert heyrt í Fatímu síðan þessar óeirðir mögnuðust. Það er þannig þegar maður á vini í þessum heimshluta að sumir þeirra eru dánir Ég vona að hún hafi komist af.“
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira