Önnur tvíburasystirin mikið veik og er haldið sofandi Viktoría Hermannsdóttir skrifar 23. febrúar 2015 07:00 Systurnar greindust á síðasta ári með sjaldgæfan litningagalla sem lýsir sér með miklum flogum og gjörbreyttu atferli. „
Við förum væntanlega í næstu viku til Boston með Þórunni þar sem á að reyna að fjarlægja blett á vinstra heilahveli hjá henni,“ segir Kristbjörg Kristjánsdóttir, móðir tvíburasystranna Þórunnar Bjargar og Sonju Óskar.Fréttablaðið sagði sögu systranna í desember en systurnar, sem eru níu ára gamlar, greindust á síðasta ári með litningagallann Ring chromosome 20. Litningagallinn er afar sjaldgæfur en aðeins er vitað um 40 tilfelli í heiminum frá árinu 1973 þegar fyrsta tilfellið var greint. Systurnar eru einu tvíburarnir í heiminum sem vitað er af með litningagallann og einu Íslendingarnir. Sjúkdómurinn lýsir sér með miklum flogaköstum en einnig hefur atferli systranna gjörbreyst. Systurnar fá mikil skapofsaköst og erfitt getur verið að ráða við þær. Til þess að ná tökum á flogaköstunum hefur systrunum verið gefin ýmis flogaveikilyf. Það hefur virkað á Sonju Ósk en ekki hefur tekist að finna lyf sem virkar fyrir Þórunni. Að sögn móður hennar er hún mikið veik núna og hefur verið haldið sofandi á aðra viku. „Hún er með sveppasýkingu í slagæðakerfinu, lungnabólgu, mikinn hita og er haldið sofandi í öndunarvél,“ segir Kristbjörg.Kristbjörg ásamt börnum sínum.Beðið er þess að Þórunn hressist þannig að hægt verði að fljúga með hana til Boston þar sem stendur til að reyna að fjarlægja blett á vinstra heilahveli hennar. Fengist hefur leyfi fyrir undanþágu á nýju lyfi sem er talið geta virkað fyrir Þórunni en hún mun ekki byrja að nota það fyrr en hún kemur aftur heim frá Boston. „Það er óvíst hversu lengi við þurfum að vera í Boston, þetta er allt í lausu lofti. Við pabbi hennar og konan hans erum meira og minna hér yfir henni uppi á gjörgæsludeild. Þetta tekur rosalega á okkur sem og alla í fjölskyldunni,“ segir Kristbjörg en auk tvíburanna á hún á tvö önnur börn auk tveggja stjúpbarna sem dvelja hjá fjölskyldunni eina helgi í mánuði núna. Frá því að Þórunn var lögð inn á Barnaspítalann síðast þá hafa foreldrar Kristbjargar verið með hin börnin á Ólafsvík þar sem þau búa. Kristbjörg ásamt föður systranna og konu hans hafa skipst á að vaka yfir Þórunni meðan hún er svona mikið veik. Vinir og ættingjar fjölskyldunnar hafa halda úti söfnunarreikningi fyrir fjölskylduna en veikindin hafa reynt mikið fjárhag fjölskyldunnar. Kristbjörg er öryrki auk þess sem sambýlismaður hennar hefur þurft að vera mikið frá vegna veikindanna. Þeim sem vilja leggja fjölskyldunni lið er bent á söfnunarreikninginn 0190-05-060444 kt. 131082-4289.
Tengdar fréttir Eineggja tvíburasystur greindust með sjaldgæfan litningagalla Systurnar Sonja Ósk og Þórunn Björg greindust á árinu með afar sjaldgæfan litningagalla sem hefur breytt lífi þeirra mikið. Mikið álag hefur verið á fjölskyldunni en móðir þeirra hefur þurft að dvelja langdvölum með þær á spítala fjarri hinum börnum sínum. 29. desember 2014 07:30 Systurnar standa enn í ströngu "Vegna lyfjabreytinga hjá henni er hún að mestu bundin við hjólastól því hún er mikið lyfjuð og fæturnir gefa eftir," segir Kristbjörg Kristjánsdóttir móðir systranna en önnur þeirra er á Barnaspítala hringsins núna. 26. janúar 2015 07:15 Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Sjá meira
Eineggja tvíburasystur greindust með sjaldgæfan litningagalla Systurnar Sonja Ósk og Þórunn Björg greindust á árinu með afar sjaldgæfan litningagalla sem hefur breytt lífi þeirra mikið. Mikið álag hefur verið á fjölskyldunni en móðir þeirra hefur þurft að dvelja langdvölum með þær á spítala fjarri hinum börnum sínum. 29. desember 2014 07:30
Systurnar standa enn í ströngu "Vegna lyfjabreytinga hjá henni er hún að mestu bundin við hjólastól því hún er mikið lyfjuð og fæturnir gefa eftir," segir Kristbjörg Kristjánsdóttir móðir systranna en önnur þeirra er á Barnaspítala hringsins núna. 26. janúar 2015 07:15