Sigmundur Davíð sagður einn lágkúrulegasti forsætisráðherra frá upphafi Jakob Bjarnar skrifar 14. desember 2015 16:12 Sérlega grunnt virðist á því góða milli þingmanna BF og ráðherraliðs Framsóknarflokksins.
Hressilegar umræður stóðu á þingi um atkvæðagreiðslu um hvort halda ætti kvöldfundi um fjárlög eða ekki. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom meðal annarra í pontu og lýsti því yfir að stjórnarandstaðan ætlaði greinilega að slá Íslandsmet í málþófi, met sem stæði sennilega um alla eilífð. Hann hvatti menn til að endilega leyfa stjórnarandstöðunni að eiga sviðið. Fjöldi þingmanna kom í pontu og lýsti því yfir að ekkert óeðlilegt væri við það þó menn vildu ræða fjárlögin, Kristján Möller þingmaður Samfylkingar taldi það einsýnt að það þyrfti að gera, tala röddu aldraðra og öryrkja sem stæðu fyrir utan Alþingishúsið í þessum töluðum; afturvirk hækkun mánaðarlegra bóta þeirra myndi nema 17 þúsundum fyrir skatt, það væru nú öll ósköpin. Stjórnarandstaðan vildi tala máli þess hóps. Fjöldi þingmanna stjórnarandstöðunnar vildi vísa á bug ásökunum um málþóf en, einkum virðist grunnt á því góða milli Sigmundar Davíðs og Bjartrar framtíðar. Róbert Marshall sagði það athyglisvert að forsætisráherra vildi koma hér upp sem fulltrúi þeirrar ríkisstjórnar sem lengst frí hefur tekið. Og hóta því að ríkisstjórnin muni ekkert funda meðan þessi umræða fer fram. Og telja daga. „Á sama tíma er mjög stór hluti þjóðarinnar farin að telja niður dagana þangað til ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fari frá völdum. Þessi einhver sú versta ríkisstjórn sem hér hefur setið og einhver sá lágkúrulegasti forsætisráðherra sem nokkru sinni hefur vermt það sæti.“ Urðu nokkur hróp og köll í þingsal og ekki síður þegar Róbert kom aftur í pontu, en þá gat hann varla komið því frá sér sem hann vildi sagt hafa, varðandi að það gæti varla talist óeðlilegt að vilja ræða fjárlög, vegna frammíkalla Gunnar Braga Sveinssonar utanríkisráðherra, sem Róbert bað um að hafa hægan og leyfa öðrum að tjá sig. „Þetta er rakinn dónaskapur,“ sagði Róbert um utanríkisráðherra.Hér má hlusta á umræðurnar.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira