Yfir hundrað óvæntar sektir á Kings of Leon Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. ágúst 2015 11:33 Lögreglumaður að sekta í Laugardalnum. „
Fólkl leggur út um allt en samt eru 1800 stæði þarna,“ segir Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs. Stöðuverðir sjóðsins og lögreglumenn höfðu nóg að gera í Laugardalnum í gær á meðan tónleikar bandarísku rokksveitarinnar Kings of Leon fóru fram. Kolbrún segir að sektirnar hafi verið rúmlega hundrað og því ljóst að hinir sömu verða tíu þúsund krónum fátækari fyrir vikið. Ódýrustu miðarnir á tónleikana kostuðu einmitt tíu þúsund krónur. Þó sleppur fólk með 8900 krónur greiði það innan þriggja virkra daga. Þrír lögreglumenn og tveir stöðuverðir voru á vappinu milli bíla í gær. Ekki var um samræmdar aðgerðir að ræða segir Kolbrún en til þeirra hefur stundum verið gripið í gengum tíðina við stærri viðburði.Kom mjög á óvart Sektaraðgerðir lögreglu í Laugardalnum í kringum íþróttaviðburði hafa verið töluvert í fréttum undanfarin misseri. Mætti ætla að margir væru farnir að átta sig á því að líkurnar á sekt, leggi maður ólöglega á slíkum viðburðum, eru töluverðar. „Á síðasta landsleik var sami fjöldi af lögreglumönnum og stöðuvörðum en það var ekkert að gera,“ segir Kolbrún. Það hafi því komið mjög á óvart hve margir lögðu illa í gær. „Það er ótrúlegur fjöldi af bílastæðum en samt byrjar fólk að raða sér út á tún og upp á gangstéttar.“Vika í Menningarnótt Hún minnir á að stæði sé að finna allt frá Laugardalslaug yfir að fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Það var einmitt þar sem flestir voru sektaðir. Samanlagt séu um 1800 bílastæði í Laugardalnum. Við bætast fjöldi bílastæða á Suðurlandsbraut. Menningarnótt verður haldin hátíðleg aðra helgi með Reykjavíkurmaraþoni og reikna má með miklum fjölda í bænum. Kolbrún hvetur fólk til að leggja löglega fari það á bíl sínum í miðbæinn.
Tengdar fréttir „Flugþreyttur en ég verð fullur á eftir svo það er í lagi“ Kings of Leon halda sem stendur tónleika í Höllinni og ætla niður í bæ að þeim loknum. 13. ágúst 2015 21:56 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira
„Flugþreyttur en ég verð fullur á eftir svo það er í lagi“ Kings of Leon halda sem stendur tónleika í Höllinni og ætla niður í bæ að þeim loknum. 13. ágúst 2015 21:56