Vonast til að sameina kynslóðir á nýju kaffihúsi í Breiðholti Viktoría Hermannsdóttir skrifar 16. ágúst 2015 19:16
Kaffihús sem ber nafnið Gamla kaffihúsið var opnað í fellunum í Breiðholti á dögunum. Eigendurnir vonast til þess að sameina íbúa hverfisins og segja lengi hafa vantað kaffihús í hverfið. Nýtt kaffihús var opnað í Drafnarfelli í Breiðholti fyrir helgi en undanfarið hefur verið að færasta meira líf í verslunarkjarnann þar. Eigendur kaffihússins vonast til að það muni sameina íbúa hverfisins, unga sem aldna. Þau segja mikla þörf hafa verið á kaffihúsi í hverfinu sem er fjölmennasta hverfi borgarinnar og segja þau mikinn uppgang vera í Breiðholtinu um þessar mundir. „Hérna búa, ég veit ekki hvað mörg þúsund manns, og á öllum aldri, þetta er svona hugsað til þess að ná til fólks á öllum aldri. Hérna geta börnin komið, fundið sér athvarf, eldri borgarar og fólk alls staðar þar á milli,“ segir Eiríkur Einarsson, einn af fimm eigendum kaffihússins. Það er ekki bara seldar veitingar á staðnum heldur er sérstakt listahorn fyrir gesti staðarins og bókahilla þar sem fólk getur komið með gamlar bækur og fengið aðrar í staðinn. „Það er til nóg af kaffihúsum niður í bæ, fólk getur farið þangað á alls konar staði en það vantaði alveg hérna í Breiðholtinu. Þess vegna er alveg kjörið að vera með einn svona stað með öllu tilheyrandi,“ segir Eiríkur. „Það er líka að koma svona svolítið „trend“ að vera með hverfiskaffihús, sjáum þarna kaffihús Vesturbæjar, hvernig það hefur gengið, þannig þetta er að verða svona svolítið trend, held ég,“ segir Unnur Arna Sigurðardóttir, ein af eigendum kaffihússins. Íbúar hverfisins sem við hittum á staðnum virðast líka vera glaðir með þessa nýju viðbót í hverfið. „Þetta er bara meiriháttar framtak, hérna megin í hverfinu, Það hefur aldrei neitt verið hægt að gera hér. ÉG ætla að vona að þetta sé komið til að vera,“ segir Alfreð Alfreðsson og Guðrún Sigurðardóttir íbúi í hverfinu tók í sama streng. „Þetta er bara alveg meiriháttar, nú getur maður bara trítlað yfir og fengið sér kaffisopa,“ segir Guðrún.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira