Lífið

Risafréttir á Disney-ráðstefnu

Birgir Olgeirsson skrifar
JJ Abrams og Harrison Ford létu sig ekki vanta á Disney-ráðstefnuna.
JJ Abrams og Harrison Ford létu sig ekki vanta á Disney-ráðstefnuna. Vísir/Getty
Það voru ansi stór tíðindi tilkynnt á ráðstefnu Disney-fyrirtækisins í Kaliforníu í Bandaríkjunum um liðna helgi. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár en þar tilkynnir Disney um væntalegar kvikmyndir, breytingar á skemmtigörðum ásamt öðru. Í ár báru hæst fréttir af ofurhetjumyndum, söngleikjamynd og upplýsingar um Stjörnustríðsmyndirnar.

Fyrirtækið tilkynnti til að mynda á ráðstefnunni að nánast allar Marvel-ofurhetjurnar munu birtast í kvikmyndinni Captain America: Civil War sem verður frumsýnd í maí árið 2016. Chris Evans, sem fer með hlutverk Captain America, flaug sérstaklega frá Þýskalandi, þar sem myndin er í tökum, til að frumsýna fyrstu stikluna úr myndinni á ráðstefnunni.

Aðdáendur Marvel-myndanna trylltust af gleði en í stiklunni mátti í fyrsta sinn sjá hetjuna Black Panther og nýja búnað The Falcon.

Myndin segir frá því hvernig ofurhetjurnar tvístrast í tvær fylkingar eftir að bandarísk yfirvöld ákveða að allar ofurhetjur þurfi að skrá sig á lista hjá ríkinu og sinna friðargæslu fyrir Bandaríkin. Captain America er á móti þessari skráningu en Tony Stark, Iron Man, er hliðhollur þessum aðgerðum. Leiða þeir tveir þessar andstæðu fylkingar og verða óvinir og má sjá í þessari stiklu hvernig þeir tveir takast á.

Margir velta fyrir sér hverjir munu tilheyra hvaða fylkingu en Ant-Man er sagður fylgja Captain America ásamt The Winter Soldier og þá mátti einnig sjá Black Widow og Hawkey takast á í þessari stiklu án þess að gefið sé upp hvorri fylkingunni þau tilheyra.

Á ráðstefnunni var einnig tilkynnt að Emma Watson mun fara með hlutverk Fríðu í leikinni kvikmynd um Disney-ævintýrið Fríða og dýrið.

Myndin er í tökum í London en leikstjóri hennar er Bill Condon. Dan Stevens, sem aðdáendur Downton Abbey kannast við, mun leik dýrið en Ewan McGregor mun leika kertastjakann, Ian McKellan leikur klukkuna Cogsworth og mun Emma Thompson leika Mrs. Potts.

Stjörnustríðsfréttirnar voru þær að fyrsta útgáfan af sjöunda kafla sögunnar, The Force Awakens, er tilbúin nú þegar 124 dagar eru í frumsýningu myndarinnar. Harrison Ford mætti á ráðstefnuna ásamt leikurum myndarinnar, John Boyega, Daisy Ridley, Oscar Isaac og Lupita Nyong´o. Aðdáendurnir fengu þær fréttir að yfirmenn Disney hefðu fengið að sjá fyrstu útgáfuna en leikstjóri myndarinnar sagði hana innihalda heilan helling af vélmennum og tónlist frá John Williams sem hljómaði eins og tónlist samin af guðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.