Kallar eftir samfélagslegri ábyrgð: „Reykjanesbær þarf á hverri einustu krónu að halda“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 30. júlí 2015 12:26
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir allt of marga leita allra mögulegra leiða til að komast hjá greiðslu útsvars, vinni svart og reyni að svíkjast undan, á meðan sveitarfélagið berjist í bökkum. Það sé siðlaust og þörf sé á hugarfarsbreytingu. Kjartan ritaði pistil á vef Víkurfrétta þess efnis eftir að álagningu opinberra gjalda lauk í bæjarfélaginu. Hann sagði flesta þá sem reyndu að komast hjá greiðslu útsvars í eigin rekstri, og sagðist vita til þess að þeir hefðu það flestir mjög gott.Fólk nýti sér gloppur í kerfinu „Við erum hér sveitarfélög á Íslandi að reka alls konar starfsemi, lögboðin verkefni, grunnskóla, gatnakerfi og hvað þetta heitir nú allt saman sem nýtist öllum íbúum með einum eða öðrum hætti og þess vegna finnst okkur sjálfsagt að allir borgir útsvar. Lögin eru bara því miður þannig að það eru gloppur og það eru tækifæri til að komast hjá þessu með ýmsu móti og það er kannski bara í mannlegu eðli að nýta sér þær smugur eins og hægt er. En með þessu er ég kannski að reyna að höfða til samviskunnar og biðja menn um að horfa til þess að Reykjanesbær þarf á hverri einustu krónu að halda,” segir Kjartan í samtali við Vísi og bætir við að mikil þörf á á hugarfarsbreytingu. Hann sé vonsvikinn með að sjá nöfn einstaklinga sem hafa það mjög gott og búa vel en greiði af eins lágum launum og mögulegt sé.Taka ætti upp norskt kerfi „Maður er vonsvikinn með það að siðferðið skuli ekki vera meira eða hærra en þetta. Ég held það þurfi að verða hugarfarsbreyting svo við horfum ekki á eftir skattpeningum sem óþarfa eða einhverju sem við erum að sólunda í vitleysu,” segir hann. Kjartan segir að möguleg lausn væri að taka upp sama kerfi og Norðmenn, þar sem skattgreiðslur einstaklinga eru aðgengilegar á netinu, ásamt því að hægt er að óska eftir upplýsingum um laun hvers og eins. Það kerfi var tekið upp árið 2001 og samkvæmt rannsókn norsku hagstofunnar bötnuðu skattskil um þrjú prósent. „Það myndi þýða fyrir okkur 157 milljónir króna meiri tekjur í útsvar fyrir Reykjanesbæ. Við gætum mjög vel notað það, og önnur sveitarfélög á Íslandi sem eru í sömu sporum."
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira