Sýknaður af kynferðisbroti gegn stjúpdóttur sinni Birgir Olgeirsson skrifar 23. júlí 2015 10:56 Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness. vísir/stefán
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað karlmann af ákæru af kynferðisbroti gegn þáverandi stjúpdóttur sinni. Samkvæmt ákæru átti maðurinn að hafa brotið gegn stúlkunni með því að hafa í eitt skipti á árinu 2005 til 2006, er hún var 8 til 9 ára gömul, í rúmi í svefnherbergi mannsins og móður brotaþola. Var maðurinn sakaður um að hafa strokið kynfæri stúlkunnar og rass innan klæða þegar hún lá á milli móður sinnar og mannsins. Móðir stúlkunnar lagði fram kæru á hendur manninum fyrir kynferðisbrot hans gegn stúlkunni á lögreglustöðinni á Suðurnesjum þann 13. Júní árið 2013. Tekin var skýrsla af móðurinni hjá lögreglu sama dag þar sem kom fram að hún og maðurinn hafi verið sambýlisfólk en hún hafi ákveðið vegna fíkniefnanotkunar mannsins að slíta samvistum við hann og hafi það verið deginum áður. Í framhaldi af því hafi stúlkan brotnað niður og farið að gráta og tjáð móður sinni hvernig maðurinn hafi brotið gegn henni kynferðislega. Maðurinn neitaði sök fyrir dómi og sagði þessar ásakanir ósannindi. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að stúlkan hafi gefið greinargóða skýrslu fyrir dómi og hafi verið trúverðug. Dómurinn taldi hins vegar framburð mannsins einnig trúverðugan. Með vísan til þess var uppi nokkur vafi í málinu að mati dómsins sem sagðist meta þann vafa samkvæmt lögum ákærða í hag. Taldi dómurinn ákæruvaldið ekki hafa tekist að axla þá byrði að sanna sekt mannsins.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira