Landspítalinn yfirfullur: Aukinn ferðamannafjöldi meðal ástæðna sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 27. júlí 2015 13:00
Landspítalinn er yfirfullur og fjöldi fólks bíður á bráðamóttöku eftir leguplássi á deildum. Hátt á annan tug sjúklinga biðu eftir leguplássi á deild nú um helgina, en heldur færri í dag, að sögn Sigríðar Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítalanum. Hún segir ástæðuna meðal annars skýrast af auknum ferðamannafjölda. „Það hefur verið mikið álag á spítalanum núna síðustu daga. Við erum bara búin að vinna í því í morgun að koma þeim sem þurfa á að halda inn á deildir og svo náttúrulega bætist við þann fjölda líka, þannig að þetta er mjög kvikt ástand,“ segir Sigríður og bæti við að algengt sé að mikið sé að gera á spítalanum á þessum tíma árs. „Þetta er veikt fólk sem þarf á þjónustu okkar að halda og ekkert eitt sem skýrir það öðru fremur annað en það að við höfum séð fram á fjölgun aldraðra og langveikra og við erum farin að finna verulega fyrir því að það er stærri hópur sem þarf á þjónustu spítalans að halda en verið hefur. Síðan bætast ferðamennirnir við og fólk finnur vel fyrir því.“ Sigríður segir eitthvað hafa verið um sumarlokanir á deildum, en umtalsvert minna nú en áður. Þá spili sumarfrí starfsmanna einnig inn í. „Það hefur gengið hér maður eftir manns hönd til að láta þetta ganga og fólk hefur verið að koma inn og taka aukavaktir og við höfum verið að reyna að forðast það að kalla fólk inn úr fríum. Enda veitir fólki ekki af því að taka sín frí og hlaða batteríin.“ Hún hvetur hvetur fólk því til að leita á heilsugæslu eða læknavakt, sé um minniháttar veikindi að ræða. „Það er eðlilegt að leita fyrst á heilsugæslustöð eða læknavaktina með minniháttar veikindi og áverka. Það er alltaf þannig og það er mjög vel þegið að fólk geri það núna. En auðvitað með öll bráð veikindi og alvarleg þá á að leita til okkar fyrst,“ segir Sigríður.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira