Vill aðgerðaráætlun gegn fordómum Viktoría Hermannsdóttir skrifar 27. júlí 2015 19:52
Full þörf er á aðgerðaráætlun gegn fordómum að mati formanns hverfaráðs Breiðholts. Fordómar af ýmsum toga séu algengir í hverfinu og snúi bæði að innflytjendum og fólki sem stríði við félagsleg vandamál. Í Breiðholti er mikið fjölmenningarsamfélag þar sem margbreytileikinn er mikill. Formaður hverfisráðsins, Nichole Leigh Mosty, segir mikilvægt að vinna gegn fordómum ýmis konar sem margir upplifi. Á leikskólanum sem hún er leikskólastjóri á er til að mynda talað 27 tungumál og segir Nichole mikilvægt að efla fjölbreytileikann og leyfa fólki að vera stolt af uppruna sínum. „Ég starfa í leikskóla þar sem 80 prósent barna og foreldra þeirra eru af erlendum uppruna og hef verið að vinna í þeirra málefnum. Upplifað ýmislegt þar sem þeim er mætt með óréttmæti. Í þeirra starfi og gagnvart kerfinu, eða þau upplifa það. Mé finnst í hverfi þar sem við erum svo mörg innflytjendur, þegar ég tala um fordóma þá á ég líka við annars konar fordóma, eins og félagslegar aðstæður," segir Nichole. Hún segir mikilvægt að nýta margbreytileikann til að bæta og breyta ímynd hverfsins. Sjálf hefur hún upplifað fordóma en þeir geti komið fram á ýmsa vegu. „Til dæmis um daginn var ég í sundi með barnið mitt og var að tala ensku við barnið mitt. Þar var kona sem færði sig frá mér og greinilega gerði sér ekki grein fyrir því að ég tala íslensku. Hún segir: Helvítis útlendingur, ætti að kenna börnunum sínum allavega íslensku.“ Sonur minn talar reiprennandi samhliða íslensku og ensku. Þetta er eitthvað sem fólk upplifir mjög oft. Ef það er út í búð að tala sitt tungumál að fá þessi viðbrögð. Fólk vill vinna við sitt móðurmál en fær ekki stuðning við það,. Það er eitthvað sem við ættum að geta unnið betur með." Nichole vill að unnið sé markvisst að því að bæta þessi mál. „Þegar fólk er að flytja í nýtt hverfi og það þarf á stuðning að halda en það fær frekar gagnrýni og leitað eftir persónulegum upplýsingum. Ég vil ekki sjá svona, við viljum sjá fólk vinna saman og styðja við hvort annað.“
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Fleiri fréttir Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Sjá meira