Merkilegt starf í Breiðholti, innlögnum fækkað um fjórðung Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 27. júlí 2015 20:21
Geðheilsustöð Breiðholts hefur náð undraverðum árangri í meðferð skjólstæðinga sinna og hefur innlögnum Breiðhyltinga á geðdeild fækkað um meira en fjórðung á þremur árum. Um tilraunaverkefni var að ræða en framtíð þess er í mikilli óvissu. Á þeim þremur árum sem tilraunaverkefnið hefur verið starfrækt hefur geðheilsa skjólstæðinga stöðvarinnar batnað til muna. Sigríður Bjarnadóttir verkefnastjóri og geðhjúkrunarfræðingur segir innlögnum hafa fækkað um meira en 25% og legudögum um 198 daga á ári. Hvatinn að verkefninu var tíðar innlagnir frá Breiðholti á geðsvið Landspítalans. „Það voru 12 prósent sem leituðu á geðsvið úr Breiðholti, þannig að þetta er talsverður árangur,“ segir Sigríður frá. Þeir sem starfa hjá Geðheilsustöðinni mæta skjólstæðingum sínum á jafningjagrundvelli. Þjónustan er heildræn og á einstaklingsgrundvelli. Unnið er eftir batahugmyndafræðinni þar sem notendum er hjálpað til að ná ýmsum markmiðum á leið til bata. Þá er farið heim til fólks ef þess gerist þörf. Katrín Guðmundsdóttir sjúkraþjálfi og einkaþjálfari starfar á heilsustöðinni við það að aðstoða fólk við að ná markmiðum sínum. „Já, að ná markmiðum sem þeir setja sér sjálfir, þau geta verið mörg og misjöfn.“ Sigríður minnir á að það sé nauðsynlegt að líta ekki á skjólstæðinga út frá geðsjúkdómum sem þeir glíma við. „Þetta er ekki bara spurning um einhvern geðsjúkdóm. Þetta er lífið þitt. Við þurfum að skoða hvernig lífi fólks er háttað, hvaða þættir eru hindranir og hvað getur hjálpað á veginum til bata.“ Þótt árangurinn sé svo góður að eftir er tekið er reksturinn í óvissu. Um tilraunaverkefni var að ræða sem er á enda. Nú er aðeins tekið á móti fólki í gegnum tilvísanir en draumur þeirra er að fá að taka á móti öllum þeim sem vilja.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var keyrt upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira