Enski boltinn

Blanc áhugasamur um Di Maria | Zlatan verður áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Laurent Blanc, knattspyrnustjóri PSG, játar því að hann sé áhugasamur um að fá Angel di Maria til félagsins frá Manchester United.

Enn fremur sagði hann að Zlatan Ibrahimovic væri ekki á leið frá félaginu. Svíinn sterki á eitt ár eftir af samningi sínum við PSG og hefur verið orðaður við bæði Inter og AC Milan en Blanc sagði að aldrei hafi neitt annað komið til greina en að Ibrahimovic verði áfram.

Framtíð Di Maria hjá United er í óvissu eftir að félagið samdi við þá Bastian Schweinsteiger og Morgan Schneiderlin. United greiddi metfé fyrir Di Maria í fyrra er félagið keypti hann á 59,7 milljónir punda frá Real Madrid.

„Já, ég er afar hrifinn af honum,“ sagði Blanc í samtali við franska dagblaðið L'Equipe. „En það er ekki auðvelt að fá leikmenn frá stórum félögum. Di Maria er góður en það eru fleiri sem vilja fá hann.“

„Samkeppnin er mjög erfið og við höfum séð hversu mikla fjárhagslega burði ensku félögin hafa. Ekki gleyma að United greiddi himinháa fjárhæð fyrir Di Maria í fyrra.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×