Upp­gjörið: Valur - Grinda­vík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin

Hjörvar Ólafsson skrifar
Kári Jónsson skoraði mikilvægar körfur á lokakafla leiksins. 
Kári Jónsson skoraði mikilvægar körfur á lokakafla leiksins.  Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Valur er með fullt hús stiga í Bónus-deild karla í körfubolta eftir tvær umferðir en liðið lagði Grindavík að velli þegar þau áttust viðí annarri umferð í N1-höllinni að Hlíðarenda í kvöld. Grindavík er hins vegar án stiga eftir tvo leiki.

Valur misstu einn en endurheimtu annan frá sigrinum gegn Stjörnunni í fyrstu umferð deildarinnar. Kristófer Acox vippaði sér af meiðslalistanum en Hjálmar Stefánsson leysti hann af hólmi á þeim lista.

Grindavík var með sömu róteringu og í tapinu gegn KR í fyrstu umferðinni en þau gleðitíðindi bárust þaðan í aðdraganda leiksins að von væri á DeAndre Kane og vonast væri til þess að sjá hann í Grindavíkurbúningum í næsta leik.

Valsmenn með hinn unga og bráðefnilega Atla Frey Haraldsson Katrínarson og reynsluboltann Pablo Bertone í broddi fylkingar fóru betur af stað í þessum leik og voru skrefi á undan í fyrsta leikhluta.

Þriggja stiga karfa Unnsteins Rúnars Kárasonar fyrir Grindavík sá hins vegar til þess að munurinn var naumur eða þrjú stig, 29-26, þegar fyrsta fjórðung lauk.

Grindvíkingar komu af krafti inn í annan leikhluta, skoruðu fyrstu fimm stig fjórðungsin og Valur Valsson kom gestunum yfir í fyrsta skipti frá því í upphafi leiksinns með huggulegri þriggja stiga körfu.

Gestirnir komu sterkri inn í annan leikhluta og snéru taflinu sér í vil. Mirza Bulic var öflugur á báðum endum vallarins og Grindavík var níu stigum yfir, 45-54, þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik.

Leikmenn Grindavíkur létu kné fylgja kviði og Ragnar Örn Bragason hamraði járnið meðan það var heitt í þriðja leikhluta. Ragnar Örn setti sinn fimmta þrist niður um miðjan þriðja leikhluta og kom Grindjánum 14 stigum yfir, 49-63.

Dwayne Lautier kveikti vonarneista í hjörtum Valsmanna þegar hann setti niður erfitt tveggja stiga skot og víti sem hann fékk að auki í þann mund sem lokaflautan gall í þriðja leikhluta. Grindavík var 62-68 yfir fyrir fjórða og síðasta leikhluta.

Valur skoraði fjögur fyrstu stig fjórða leikhluta og Atli Freyr minnkaði muninn í tvö stig, 66-68, í upphafi leikhlutans. Kári Jónsson kom svo heimamönnum yfir með þriggja stiga körfu, 70-72, þegar þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum.

Lítið var skorað það sem eftir lifði leikhlutans en Kári kom Val í góða stöðu með þriggja stiga körfu sinni þegar 44 sekúndur voru eftir af leiknum. Valur leiddi þá með fimm stigum 79-74. Niðurstaðan að lokum sjö stiga sigur Vals, 81-74. 

Finnur Freyr var sáttur við að stigin tvö komu í hús. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Finnur Freyr: Margt sem við þurfum að laga

„Það var klárlega haustbragur á þessum leik og frammistaðan langt frá okkar besta. Sem betur fer skilaði þó spilmennskan þó tveimur stigum og það gleður mig eiginlega bara mest,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, eftir leik.

„Við náðum að herða varnarleikinn og héldum þeim í kringum 20 stig í seinni hálfleik sem er vissulega jákvætt. Atli Freyr heldur svo áfram að skila góðu framlagi og sýna þroskaða frammistöðu. Það hálffyllir glasið að sjálfsögðu,“ sagði Finnur Freyr um ungstirnið sem hann er með í höndunum. 

„Ég skal alveg viðurkenna það að það kemur mér á óvart að Atli Freyr sé að skila tvöfaldri tvennu annan leikinn í röð þegar litið er til þess að hann er 16 ára gamall. Atli á eftir að læra margt en hann er viljugur að soga að sér körfuboltavitneskju og það hefur skilað honum hárri körfuboltagreind,“ sagði Finnur um leikmann sinn. 

„Fram undan er undirbúningur fyrir bikarleik á sunnudaginn kemur. Við þurfum að æfa vel fram að þeim leik og fara yfir það sem betur mátti fara. Svo verður að hafa í huga að Kristófer er að koma úr meiðslum og það sást bersýnilega í þessum leik að hann er að koma sér í gang eftir meiðsli. Formið hjá honum og öðrum leikmönnum liðsins mun batna með hverri æfingavikunni sem líður,,“ sagði hann um framhaldið. 

Jóhann Þór: Mikil framför en því miður ekki nóg

„Við vorum mun betri í þessum leik en á móti KR sem er vissulega gott. Það er aftur á móti afar svekkjandi að að hafi ekki dugað til þess að sækja sigur. Við vorum komnir í góða stöðu en náðum ekki að fylgja því eftir og ýta þessu yfir línuna,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, að leik loknum.

„Það voru möguleikar á því að koma okkur 20 stigum yfir í þriððja leikhluta. Þar klúðrum við tveimur opnum layupum og í kjölfarið hefst endurkoman hjá þeim. Eftir það förum við að elta leikinn og sætta okkur við þokkaleg þriggja stiga skot,“ sagði Jóhann Þór. 

„Að þessu sinni rötuðu skotin ekki rétta leið og við fundum ekki leiðir til þess að koma okkur inn í leikinn með öðrum hætti. Við tökum með okkur fullt af jákvæðum hlutum og liðið er klárlega á réttri leið,“ sagði Jóhann borubrattur. 

„Ég merkti klárlega bragarbót á liðsandanum frá tapinu gegn KR og það var allt annað að sjá viðbrögð leikmanna við mótlæti. Við fáum DeAndre Kane inn í leikmannahópinn um heldina og það styrkir liðið að sjálfsögðu umtalsvert. Við lítum björtum augum á næstu verkefni,“ sagði hann um það sem koma skal. 

Atvik leiksins

Dwayne Lautier sýndi hversu gott vald hann hefur á skottækni sinni þegar hann skoraði skemmtilega körfu í öðrum leikhluta. Lautier var þá kominn aftur fyrir spjaldið þegar hann keyrði í átt að körfunni. Það kom ekki í veg fyrir að hann setti boltann beint ofan í.

Stjörnur og skúrkar

Pablo Bertone sýndi stöðugustu frammistöðuna hjá Valsliðinu og þegar yfir lauk var 25 stig það sem hann lagði í púkkinn. Kári Jónsson og Dwayne Lautier komu svo með 17 stig á borðið en klókindi Kára og körfuboltaleg gæði komu sér vel fyrir Valsliðið þegar á hólminn var komið. 

Það er ofboðslega gaman að fylgjast svo með framgöngu hins 16 ára gamla Atla Freys sem spilar eins og reynslumikill leikmaður í fyrsta skipti í djúpu lauginni. Atli skoraði 16 stig og reif niður 14 fráköst.  

Hjá Grindavík voru Mirza Bulic og Ragnar Örn fremstir á meðal jafningja. Bulic setti niður 22 stig og tók 19 fráköst þess utan. Ragnar Örn setti niður sex þrista og skoraði í heildina 20 stig. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Kristinn Óskarsson, Bjarki Þór Davíðsson og Davið Kristján Hreiðarsson voru í litlu hlutverki í þessum leik og þannig vil ég hafa það. 

Fumlaus og sanngjörn dómgæsla þeirra skilar þeim átta í einkunn fyrir gott kvöldverk sitt. 

Stemming og umgjörð

Blaðamenn fengu dýrindis Foccacia samloku og það var svo sannarlega vel þegið. Ítalskur andi sveif yfir vötnum í Fjósinu og viðstaddir virtust njóta þess til hins ítrasta að geta notið ítalskrar matseldar á þessu fallega föstudagskvöldi.

Fleiri félög mættu taka sér Val til fyrirmyndar og brydda upp á nýjungum þó svo að gamli góði hamborgarinn standi alltaf fyrir sínu svo sem.

Svo verður nú að hrósa þeim vönduðu, faglega og skemmtilegu plötusnúðum sem voru með puttann á púlsinum og komu þeim sem lögðu leiða sína í Valsheimilið í rétta andann ef sá gállinn var á fólki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira