Ár liðið frá harmleik í háloftum Úkraínu Heimir Már Pétursson skrifar 17. júlí 2015 20:00
Tæplega þrjúhundruð karla, kvenna og barna sem fórust þegar farþegaflugvél Malaysian Airlines var skotin niður yfir Úkraínu fyrir ári var minnst víða um heim í dag. Flest bendir til að rússneskir hermenn hafi skotið flugvélina niður og hafa Hollendingar kallað eftir rannsóknarrétti á vegum Sameinuðu þjóðanna. Einn mannskæðasti atburður flugsögunnar gerðist þennan dag fyrir ári þegar Boeing 777 farþegaflugvél Malaysian Airlines var skotin niður með eldflaug yfir austurhluta Úkraínu með þeim afleiðingum að allir 298 um borð fórust. Fólkið kom víðs vegar að úr heiminum en um 200 þeirra voru Hollendingar og Hollendingum að lokum falið að leiða rannsókn málsins. Mark Rudd forsætisráðherra Hollands mætti til minningarathafnar í dag en margir viðstaddra höfðu með sér sólblóm sem hafa orðið tákn hildarleiksins þar sem flugvélin hrapaði niður á sólblómaakur á átakasvæðinu í Úkraínu. „Dagurinn í dag er erfiður þar sem við lifum þessa atburði aftur. Það er ekki hjá því komist að minningarnar hellist yfir okkur. Um hvernig við fengum fréttirnar, hvar við vorum þegar við heyrðum þær. Þetta augnablik þegar dauðinn kom til okkar frá ókunnum stað í þúsundum kílómetra fjarlægð er frosið í tímans rás,“ sagði Rudd á minningarathöfninni þar sem nöfn allra þeirra sem létust voru lesin upp og ættingjar og vinir minntust ástvina sinna. Á staðnum þar sem þotan hrapaði til jarðar minntust sendimenn Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu ÖSE þeirra sem létust með mínútu þögn í dag. Aðstoðaryfirmaður stofnunarinnar segir sorglegt að hugsa til þess að þar sem allt þetta fólk missti líf sitt, sé enn barist en um 6.500 manns hafa fallið í átökum aðskilnaðarsinna með stuðningi Rússa gegn stjórnvöldum í Úkraínu. Í nýlegri skýrslu bandarískra yfirvalda er fullyrt að rússneskir hermenn hafi skotið flugvélina niður í misgripum fyrir úkraínska herflutningaflugvél. Hægt sé að sanna hvaðan flugskeytinu var skotið og að um rússneskt flugskeyti hafi verið að ræða. En Rússar hafa alltaf þvertekið fyrir að eiga aðild að málinu og segja úkraínska hermenn hafa grandað þotunni. Félagar í ungliðahreyfingu sem styður Vladimir Putin forseta Rússlands lögðu rósir við hollenska sendiráðið í Moskvu í dag og vegfarendur sem spurðir voru út í atburðinn trúa greinilega fullyrðingum forsetans. En Putin hefur ítrekað sagt að engir rússneskir hermenn berjist í Úkraínu og engin vopn hafi verið send þangað. „Ég held að Úkraínumenn hafi skotið flugvélina niður. Hundrað prósent. Það kemur ekki annað til greina,“ segir Vladimir verkamaður í Moskvu. Og eftirlaunaþegin Natalia var á sama máli. „Að sjálfsögðu tel ég að Rússar hafi ekki átt nokkurn þátt í þessu. Flugvélin var skotin niður af fólkinu frá Maidan torgi (í Kænugarði). Ég myndi segja að það fólk hafi gert þetta. Það er gnægð sannana um það,“ sagði Natalia. Rannsókn Hollendinga á gröndun flugvélarinnar er langt komin og fara þeir fram á að Sameinuðu þjóðirnar skipi rannsóknardóm í málinu.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira