Lagði áherslu á stefnu Íslands á alþjóðavettvangi um nýtingu jarðhita Stefán Árni Pálsson skrifar 20. maí 2015 20:03 Gunnar Bragi fyrr í dag. vísir
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók þátt í ráðstefnu um sjálfbæra orku fyrir kynslóðir framtíðar í dag. Að henni standa Sameinuðu þjóðirnar og SE4ALL-vettvangurinn, (sjálfbær orka fyrir alla) en Ísland er í hópi sjö ríkja sem hafa stutt við rekstur hans, auk alþjóðastofnana á borð við SÞ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Þá á forseti Íslands sæti í ráðgefandi stjórn SE4ALL- vettvangsins. Sjónum ráðstefnunnar er beint að fjármögnun og þróun sjálfbærra orkugjafa. Gunnar Bragi tók þátt í pallborðsumræðum þar sem sérstaklega var fjallað um leiðir til að mæta kröfunni um að allir jarðarbúar hefðu aðgang að endurnýjanlegri orku árið 2030. Í framsögu sinni lagði hann áherslu á stefnu Íslands á alþjóðavettvangi um nýtingu jarðhita á heimsvísu. Ísland er í dag aðalsamstarfsaðili Alþjóðabankans í jarðhita og í sameiningu er nú unnið að framkvæmd nokkurra jarðhitaverkefna í Austur Afríku eins og í Eþíópíu og Tansaníu. Utanríkisráðherra skýrði frá frumkvæði Íslands og IRENA samtakanna um stofnun samstöðuhóps um nýtingu jarðhita á heimsvísu sem fyrirhugað er að ýta formlega úr vör í París í desember nk. á vettvangi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Fram kom í máli Gunnars Braga að Ísland leggur mikla áherslu á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa til lausnar loftslagsvandanum. Með áherslu á samvinnu við helstu stofnanir alþjóðasamfélagsins í orkumálum, Alþjóðabankann og IRENA, hefur tekist að fá stuðning fjölmargra ríkja, svæðabundinna þróunarbanka og loftslagssjóða við jarðhitanýtingu. Þannig hafa náðst fram margfeldisáhrif sem eftir er tekið. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ, setti SE4ALL á fót 2011 til að stuðla að því að allir í heiminum hafi aðgang að hreinni endurnýjanlegri orku. Nánar má lesa um SE4ALL á heimasíðu verkefnisins.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira