Innlent

Hjólreiðamanninum haldið sofandi í öndunarvél

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Slysið varð á gatnamótum Hálsabrautar og Krókháls.
Slysið varð á gatnamótum Hálsabrautar og Krókháls. Vísir/Pjetur
Alvarlegt umferðarslys varð á gatnamótum Krókháls og Hálsabrautar í Árbænum í Reykjavík snemma í morgun þegar bifreið var ekið á hjólreiðamann. Hjólreiðamaðurinn var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild og er honum haldið sofandi í öndunarvél að sögn læknis á spítalanum.

Rannsóknardeild lögreglunnar skoðaði vettvanginn í morgun og er slysið í rannsókn. Farþegi í bílnum, sem endaði á ljósastaur, var einnig fluttur á slysadeild.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×