1.3 milljónir hafa safnast handa Ísabellu Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. maí 2015 17:45 Systurdóttir Ásdísar Hjálmsdóttur þjáist af Crohn's-sjúkdómi og reikningar eru að sliga fjölskylduna. VÍSIR
Alls hafa safnast ríflega 10 þúsund dalir, rúmlega 1.3 milljónir króna, handa hinni sjö ára gömlu Ísabellu Hjálmdís sem greindist með Crohn's (bólgusjúkdómur í þörmum) og liðagigt fyrir rétt rúmum tveimur mánuðum síðan. Afreksíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir, sem hefur keppt fyrir Íslands hönd í spjótkasti á Ólympíuleikunum, stendur að söfnuninni en Ísabella er systurdóttir Ásdísar. Systir Ásdísar býr í Flórída ásamt eiginmanni sínum, Brett, og tveimur dætrum þeirra.Sjá einnig: Ólympíufari kemur systurdóttur sinni til hjálparÁ Facebook-síðu sinni þakkar Ásdís fyrir stuðninginn við söfnunina en hún hefur nú staðið yfir í liðilega tvær vikur og hafa 128 einstaklingar látið fé af hendi rakna á þeim tíma. Stefnt var að því að safna um 15 þúsund dölum og hafa því um 68 prósent upphæðarinnar safnast á ekki lengri tíma en söfnunin mun standa yfir í 48 daga til viðbótar. Þar segir hún einnig að þeir rúmlega 10 þúsund dalir sem safnast hafa standi undir kostnaðinum við fyrstu spítaladvölina hennar og sé það „gríðarlegur léttir“ fyrir Ísabellu og aðstandendur hennar. Á heimasíðu söfnunnar segir að fjölskylda Ísabellu sé búin að „upplifa mjög erfiða tíma undanfarið” enda hafi stúlkan verið mikið veik í næstum tvö ár. „Þau fóru fram og til baka á milli lækna, sérfræðinga og til sjúkraþjálfara til að reyna að finna út hvað væri að en enginn hafði svör. Hún gat ekki hlaupið um og leikið sér eins og önnur börn án þess að liggja grátandi með kælipoka og verkjatöflur um kvöldið. Auk þess var hún öll að rýrna og þroskaðist ekki eðlilega,“ sagði Ásdís í samtali við fréttastofu frá gangi sjúkdómsins, sem var greindur eftir langa sjúkrahúsdvöl og endurteknar rannsóknir. Öllum þeim sem hafa áhuga á að styðja við bakið á Ísabellu og fjölskyldu hennar er bent á styrktarsíðu söfnunarinnar.
Tengdar fréttir Ólympíufari kemur systurdóttur sinni til hjálpar "Nú fer að koma að því að borga reikninga sem eru langt umfram þeirra bolmagn,“ segir Ásdís Hjálmsdóttir. 15. maí 2015 10:00 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Sjá meira
Ólympíufari kemur systurdóttur sinni til hjálpar "Nú fer að koma að því að borga reikninga sem eru langt umfram þeirra bolmagn,“ segir Ásdís Hjálmsdóttir. 15. maí 2015 10:00