Innlent

Endurlífgaður eftir umferðarslys við Hvítársíðu: Haldið sofandi á gjörgæsludeild

Birgir Olgeirsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn til Reykjavíkur.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn til Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm
Manninum sem lenti í umferðarslysi við Hvítársíðu í Borgarfirði fyrr í dag er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Maðurinn, sem er erlendur ferðamaður, var á ferð á bifhjóli eftir malarvegi við Hvítársíðu þegar hann missti stjórn á ökutækinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi var það mat vitna á vettvangi að ekki hefði verið um háskaakstur að ræða heldur aðstæðum á veginum.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang á fimmta tímanum í dag en þá hafði maðurinn verið endurlífgaður á vettvangi. Kona var með honum í för en hún var einnig flutt á slysadeild en áverkar hennar voru minniháttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×