Fjórir af hverjum fimm enda á leigumarkaði eftir nauðungarsölu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 26. maí 2015 15:31 Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra vísir/ernir
81% Suðurnesjafjölskyldna, sem misstu húsnæði sitt á nauðungarsölu á árunum 2008-2011, búa nú í leiguhúsnæði. Margar fjölskyldur notfærðu sér ekki þau úrræði sem í boði voru vegna skorts á upplýsingum um þau. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum könnunar sem gerð var af Velferðarráðuneytinu. Í desember 2012 voru birtar niðurstöður rannsóknar um nauðungarsölu íbúðarhúsnæðis á Suðurnesjum á árunum 2001-2011 í ljósi þess að nauðungarsölur voru þar hlutfallslega mun algengari en annars staðar á landinu. Í framhaldi af þeirri könnun var ákveðið að afla ítarlegri upplýsinga um þá sem misstu húsnæði sitt, með sérstakri áherslu á barnafjölskyldur og liggja þær niðurstöður nú fyrir. Í úrtaki voru 335 einstaklingar og fjölskyldur en 150 svöruðu. Líkt og áður segir búa 81% nú í leiguhúsnæði, tæp níu prósent í eigin húsnæði og um tíu prósent inn á ættingjum eða hafa afnot af húsnæði í eigu ættingja eða vina. Í apríl 2014 voru börn búsett á um helmingi þeirra heimila þar sem húsnæði var selt á nauðungarsölu. Um 45% barnanna þurftu að skipta um skóla, um 32% barnanna misstu tengsl við vini sína samkvæmt upplýsingum svarenda og um 15% þeirra þurftu að hætta í tómstunda- eða íþróttastarfi. Hátt hlutfall svarenda (63%) sem misst hafði húsnæði á nauðungarsölu hafði ekki nýtt sér nein úrræði vegna fjárhags- eða húsnæðisvanda. Viðmælendur vissu ýmist ekki af þeim, skildu þau ekki eða fengu misvísandi upplýsingar frá ólíkum aðilum um hvaða úrræði stæðu til boða og hvernig ætti að bera sig eftir þeim. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir niðurstöður könnunarinnar undirstrika hve mikilvægt sé að skapa húsnæðismarkað með fjölbreyttum valkostum sem henta ólíkum aðstæðum fólks og efnahag: „Við getum ekki tryggt öllum öruggt húsnæði nema með því að gera leiguhúsnæði og búseturétt að raunhæfum kosti. Niðurstöðurnar sýna líka glöggt hve mikið er í húfi til að búa börnum, öllum börnum öruggt heimili.“ Hægt er að lesa úttektina í heild sinni hér.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira