Ökumaður ósáttur við hjólreiðamenn: „Sýnist ykkur þetta vera fokking gangbraut?“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. maí 2015 10:16 Árni Viðar segir að sem betur fer séu svona viðbrögð ökumanna í garð hjólreiðamanna óalgeng. vísir
Myndband sem sett var á Youtube í gærkvöldi og deilt í Facebook-hópnum Samgönguhjólreiðar hefur vakið nokkra athygli. Í myndbandinu, sem er hér að neðan, sjást tveir hjólreiðamenn fara yfir götuna Vatnsendahvarf á gatnamótum Vatnsendahverfis og Breiðholtsbrautar. Á myndbandinu má sjá hvar jeppi stoppar fyrir þeim en hinu megin við þann bíl kemur Porsche á fleygiferð sem snarhemlar en ökumaðurinn er allt annað en sáttur við hjólreiðamennina. Hann skrúfar niður rúðuna og spyr: „Sýnist ykkur þetta vera fokking gangbraut?“ Árni Viðar Björgvinsson, annar hjólreiðamannanna og sá sem tók myndbandið, segir að vissulega sé þarna ekki um gangbraut að ræða samkvæmt umferðarlögum. Þessi viðbrögð ökumannsins séu engu að síður ágætis áminning um að sýna tillitssemi í umferðinni. „Hann gólaði bara þetta, ég fór framhjá en hann gólaði eitthvað meira af sama tuði á vinnufélaga minn sem var með mér. Þetta var mjög stutt samt og í rauninni er þetta mjög óalgengt. Ég hef hjólað síðan 2010 og þetta hefur skánað mjög mikið. Ökumenn eru til dæmis að fatta að við megum vera á götunni og að við verðum bara að vera saman í umferðinni,“ segir Árni. Vísir reyndi að ná tali af ökumanni bílsins en ekki hefur náðst í hann í morgun.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Erlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Fleiri fréttir Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Sjá meira