Erfitt að hafna fyrirtækjasamningum sem ganga að kröfum Heimir Már Pétursson skrifar 13. maí 2015 20:03
Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir erfitt fyrir stéttarfélög innan sambandsins að standa gegn því að skrifa undir kjarasamninga þegar fyrirtæki gangi að launakröfum. Stéttarfélag Vesturlands hefur sagt sig úr samfloti sextán félaga vegna fyrirtækjasamninga. Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands segir það draga úr samstöðu sextán félaga innan Starfsgreinasambandsfélaganna sem verið hafa í verkfallsaðgerðum þegar sum verkalýðsfélög geri samninga við einstök fyrirtæki. Í raun séu þessi verkalýðsfélög umboðslaus þar sem þau hafi framselt samningsumboðið til Starfsgreinasambandsins. Því hafi verið samþykkt á samninganefndarfundi Stéttarfélags Vesturlands að draga samningsumboð sitt til baka. „Og menn hafa jafnvel samið við fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins sem ekki hafa umboð til að semja. Þeir hafa gengið yfir samningssvæði. Þetta eru bara vinnubrögð sem Stéttarfélag Vesturlands hefur ekki áhuga fyrir að stunda,“ segir Signý. „Staðan hjá okkur er einfaldlega þannig að það er legið í öllum formönnum okkar aðildarfélaga að gera samninga og þeir hafa verið gerðir á mjög mörgum svæðum. Þegar fyrirtæki koma til félaganna og segja við erum tilbúin til að ganga að ykkar að ykkar kröfum. Við viljum það, hvar eigum við að skrifa undir, þá er mjög erfitt að standa gegn því,“ segir Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins. Hins vegar hafi ekki verið eining um þessi mál meðal stéttarfélaganna um hvort ganga eigi að samningum sem þessum. Stéttarfélögin hafi gefið samningsumboð sitt til Starfsgreinasambandsins en ráði sjálf sínum málum. „Ég met það sem svo, þótt ég hafi ekki fullkomna yfirsýn yfir þessa samninga sem verið er að gera, þá met ég það sem svo að þeir séu ekki að þeirri stærðargráðu að það hafi áhrif,“ segir Drífa. Þannig að samtakamátturinn er ekki að minnka við þetta? „Nei, ég tel ekki,“ segir Drífa Snædal.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira