Ný rannsókn á gosösku stuðlar að auknu flugöryggi Atli Ísleifsson skrifar 18. maí 2015 09:46 Niðurstöður rannsóknarinnar eru birtar í nýjasta hefti vísindatímaritsins Atmospheric Measurement Techniques sem kemur út í dag. Vísir/Vilhelm
Ný rannsókn sem varpar nýju ljósi á stærð gosöskuagna og dreifingu þeirra í lofthjúpnum, gæti haft veruleg áhrif á forspár um hvar flugvélum er óhætt að fljúga í kjölfar öskugosa og þannig stuðlað að auknu flugöryggi. Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að rannsókin sé gerð á vegum breskra og íslenskra vísindamanna og eru niðurstöður hennar birtar í nýjasta hefti vísindatímaritsins Atmospheric Measurement Techniques sem kemur út í dag. „Eins og kunnugt er höfðu gosin í Eyjafjallajökli 2010 og í Grímsvötnum 2011 mikil áhrif á flugumferð í Evrópu og yfir Norður-Atlantshafi þar sem fresta þurfti hundruðum flugferða vegna ótta flugmálayfirvalda við áhrif gosöskunnar á flugvélahreyfla og óvissu um dreifingu gosöskunnar. John A. Stevenson, sérfræðingur við Jarðvísindadeild Edinborgarháskóla, og Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, ásamt samstarfsfólki þeirra í jarðvísindum og loftslagsvísindum við Edinborgarháskóla, Háskólann í Leeds og Bresku veðurstofuna hafa á undanförnum árum rannsakað ösku úr gosunum í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum, sem safnað var á Bretlandseyjum, með það fyrir augum að bera hana saman við innrauðar mælingar á gosöskuskýjum sem gerðar voru með gervihnöttum á meðan á gosunum stóð. Hópurinn skoðaði einnig gömul öskusýni sem sótt voru í mýrasvæði í Skotlandi, Írlandi og Jórvíkurskíri og sýni úr Öskjugosinu 1875 sem safnað var í Noregi þegar öskufallið varð. Markmiðið var m.a. að reyna að bæta þær aðferðir sem notaðar eru til að meta þéttleika gosösku, varpa skýrara ljósi á stærð öskuagnanna og hversu langt þær geti borist með vindum. Rannsóknirnar leiddu í ljós að öskukornin sem berast til Evrópu frá íslenskum sprengigosum eru mun stærri en líkanútreikningar byggðir á gervihnattaathugunum gera ráð fyrir. Athuganir sýna að allt að 125 mikrómetra öskuagnir hafa borist með gosmökkum íslenskra sprengigosa (sbr. Eyjafjallajökulsgosið 2010) til Bretlandseyja, Skandinavíu og Vestur-Evrópu. Með aðstoð hermunarlíkana kannaði hópurinn enn fremur hversu vel mismunandi stórar öskuagnir komu fram á gervihnattaskynjurum sem notaðir eru til að fylgjast með gosösku. Niðurstöðurnar sýna að skynjararnir vanmeta meðalstærð og massa öskuagna í skýinu um allt að 50%. Það gefur auga leið að slíkt vanmat getur haft alvarlegar afleiðingar þegar meta á hvort loka eigi tilteknu svæði fyrir flugumferð.“
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira