Hugmyndir um að leggja niður vasapeningakerfið liggi að mestu fyrir Bjarki Ármannsson skrifar 5. maí 2015 19:18 „Ég bind vonir við að hægt verði að taka upp breytt kerfi áður en langt um líður,“ segir Eygló. Vísir/GVA/Vilhelm
Hugmyndir um að leggja niður svokallað vasapeningakerfi fyrir vistmenn dvalar- og hjúkrunarheimila liggja að mestu fyrir. Vonir eru bundnar við að hægt verði að taka nýtt kerfi áður en langt um líður. Þetta sagði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, í ræðu sinni á fundi Landssambands eldri borgara í dag.Vasapeningakerfið virkar þannig að þegar einstaklingur flytur inn á dvalar- eða hjúkrunarheimili þá greiðist lífeyrir viðkomandi frá Tryggingastofnun inn á heimilið en hámarks þátttaka í dvalarkostnaði er 354.902 krónur. Ef tekjur eru undir 74.696 á mánuði eftir skatt, þá tekur íbúi ekki þátt í dvalarkostnaði sínum. Viðkomandi fær svo vasapening úthlutað frá Tryggingarstofnun sem er að hámarki 53.354 krónur á mánuði. Vasapeningar eru tekjutengdir og falla alveg niður ef tekjur ná 82.083 krónum á mánuði. Talsverðrar óánægju hefur gætt með þetta kerfi og í nýlegri frétt Fréttablaðsins sagði Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, það svipta aldraða sjálfræði. Kerfið væri úrelt og það réttlætismál að fá því breytt. Í máli Eyglóar í dag kom fram að hugmyndir um breytt greiðslufyrirkomulag miði að því að auka sjálfræði aldraðra. Stefnt sé að tilraunaverkefni um innleiðingu þessara breytinga. „Ég bind vonir við að hægt verði að taka upp breytt kerfi áður en langt um líður en til umræðu er að prófa það fyrst sem tilraunaverkefni í ljósi þess að þetta er umtalsverð breyting sem þarf að vanda vel til“ sagði Eygló. Nýtt kerfi myndi byggja á því að einstaklingar greiði milliliðalaust fyrir alla þjónustu sem þeir fá á hjúkrunarheimilum, að undanskilinni heilbrigðisþjónustu og annarri umönnun. Greiðslufyrirkomulagið yrði þannig tvíþætt, þar sem annars vegar væru daggjöld ríkisins vegna heilbrigðisþjónustu og umönnun en einstaklingarnir myndi greiða fyrir almenna framfærslu að öðru leyti. Að auki er svo gert ráð fyrir húsaleigukostnaði sem tæki mið af stærð og gæðum húsnæðisins en einnig af tekju- og eignastöðu viðkomandi. Samkvæmt þessum hugmyndum er gert ráð fyrir að fólk geti átt rétt á húsaleigubótum, rétt eins og gildir á almennum leigumarkaði.
Tengdar fréttir Vasapeningakerfi sviptir aldraða sjálfræði Formaður Félags eldri borgara telur réttlætismál að lagt verði af "vasapeningakerfi“ á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða. Heimilin fá lífeyrisgreiðslur viðkomandi heimilismanna sem er síðan úthlutað vasapeningum. 16. mars 2015 07:00 Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira
Vasapeningakerfi sviptir aldraða sjálfræði Formaður Félags eldri borgara telur réttlætismál að lagt verði af "vasapeningakerfi“ á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða. Heimilin fá lífeyrisgreiðslur viðkomandi heimilismanna sem er síðan úthlutað vasapeningum. 16. mars 2015 07:00