Innlent

Fjölþjóðlegt fjör og margmenni í miðborginni

Heimir Már Pétursson skrifar
Mikið var um dýrðir í miðborg Reykjavíkur í dag þegar íbúar borgarinnar af fjölbreyttum uppruna gengu saman í skrúðgöngu frá Skólavörðuholti að Ráðhúsinu. Þar gat fólk síðan kynnt sér þjóðmenningu, siði og mat hinna ýmsu þjóðarbrota á fjölmenningarhátíð borgarinnar.

Vísir/Stöð 2
Það viðraði vel til hátíðarhalda í höfuðborginni í dag þegar fjölmenningardagurinn var haldinn í sjöunda skipti. En talið er að fólk af 130 þjóðernum búi í Reykjavík.

Anna Kristinsdóttir mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar segir það ómetanlegt fyrir fólk af ólíkum uppruna í borginni að haldnir séu fjölmenningardagar.

„Það er þeirra vilji að fá að halda svona dag til að sýna okkur hvað er mikil fjölbreytni í borginni. Og við finnum að það eru ekki til fordómar á þessum degi, segir Anna.

Vísir/Stöð 2
Og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var í sólskinsskapi í göngunni.

„Já heldur betur. Ég er ekki frá því að hitinn hafi hækkað um nokkrar gráður í dag. Ég held að sýnileiki, fjölbreytni og gleði skipti alltaf máli,“ sagði borgarstjórinn.

Fjölmenningargangan endaði við ráðhúsið þar sem gaf að líta alls kyns kræsingar og kynningar frá öllum heimshornum. Bernhard, snáði um það bil sjö ára, var hæst ánægður með daginn og fannst partýið skemmtilegast og var staðráðinn í að fá sér köku.

Vísir/Stöð 2
Fólk allstaðar að úr heiminum býr í Reykjavík og hefur flutt þangað af ýmsum og ólíkum ástæðum. Til að mynda búa rúmlega 70 Kenýamenn í borginni. Hjónin Paul og Rosemary ramses eru meðal þeirra. Þau mættu klædd ákaflega fallegum þjóðlegum klæðnaði og buðu upp á ýmsan varning frá heimalandinu.

„Við erum að styrkja skóla í Kenya. Það gengur bara mjög vel. Við erum búin að byggja leikskóla fyrir 150 börn og erum núna að byggja grunnskóla fyrir 350 börn,“ sagði Rosemary stolt.

Jana er af annarri kynslóð Víetnama á Íslandi en nýstofnað félag þeirra tók í dag í fyrsta skipti formlega þátt í fjölmenningardeginum. Hún segir gott að vera Víetnami í Reykjavík.

„Það er mikill munur á því og í gamla daga. Þeir fá meiri upplýsingar núna. Innflytjendur sem koma til landsins fá meiri aðstoð til að laga sig að nýju samfélagi,“ sagði Jana og bauð fréttamanni upp á gómsætan eftirrétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×