Krummi í Kvennaskólanum Anna Guðjónsdóttir skrifar 21. apríl 2015 13:42 Ásdís segir að mikil spenna sé meðal fólks og eru allavega þrjú egg. Vísir/Stefán/Árný M. Eiríksdóttir
Hrafnspar nýtti páskafríið til að byggja sér glæsilegan laup á syllu við Kvennaskólann í Reykjavík. „Það eru allavega þrjú egg í fallega grænum lit,“ segir Ásdís Ingólfsdóttir, kennari í efnafræði og hagfræði við Kvennaskólann. Mikið hefur verið fylgst með hröfnunum og sett hefur verið upp vefmyndavél sem fylgist með þeim. „Þetta er myndalegur laupur sem þau hafa byggt úr greinum. Einhver úr Þingholtunum hefur eflaust verið að klippa greinar sem hrafnarnir hafa notað. Það er líka vel skreytt með ýmiskonar böndum,“ segir Ásdís. Hún segir krumma víkja varla frá hreiðrinu.Krummi hefur komið sér vel fyrir á syllunni.Mynd/Árný M. EiríksdóttirLaupurinn er staðsettur fyrir utan glugga á vinnuherbergi stærðfræðikennara skólans og snýr að Listasafninu. „Þetta er prýðisgóður staður enda er þetta rúmgóð sylla með þaki yfir svo þau eru í góðu skjóli. Fyrst vorum við alltaf að opna gluggann til að kíkja út en síðan var sett upp vefmyndavél þar sem hægt er að fylgjast með parinu á netinu,“ segir Ásdís. Hún segir að hrafnarnir hafi ekki kippt sér upp við uppsetningu myndavélarinnar. „Þau eru mjög spök og þegar verið var að bora fyrir myndavélinni sat hún á eggjunum og hreyfði sig ekki.“ „Hrafninn er alltaf nálægt manninum og virðist gera sér grein fyrir að þeim er ekki ógnað,“ segir Ásdís. Hún segir að kennarar skólans fylgist mikið með fuglalífinu. „Það er nánast óhjákvæmilegt þar sem tjörnin er svo nálægt. Við höfum tekið eftir að það var mikið af hröfnum í bænum í vetur. Við höfum líka séð fálka gæða sér á dúfu hér á hólmanum í tjörninni. En þetta er mesta nábýli sem við höfum fengið að upplifa,“ segir Ásdís. Hún segir að mikil spenna sé meðal fólks innan skólans, þó ekki allir hafi verið hrifnir í fyrstu. „Það eru einhverjir hér úr sveit sem ekki er vel við hrafna, enda eiga þeir til að taka unga. En það er gaman að þessu og við munum halda áfram að fylgjast vel með parinu,“ segir Ásdís.Hér má fylgjast með hrafnsparinu í vefmyndavél, en til þess þarf að hlaða niður Quick Time-forriti.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Sýndu mynd af líki hins látna fyrir slysni Ragnar Þór segist ekki hafa haft neitt með skilaboðin til Guðmundar Inga að gera Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent Sjá meira