Bíó Paradís selur tíu ára árskort fyrir bætt aðgengi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 29. apríl 2015 12:20 Kvikmyndahúsið státar ekki af góðu aðgengi fyrir fólk sem bundið er við hjólastól. Vísir/Ernir
Kvikmyndahúsið Bíó Paradís hefur hafið söfnun á vefsíðunni Karolina Fund til þess að safna fjármagni svo hægt sé að bæta aðgengi fólks í hjólastólum. Aðgengismál í bíóhúsinu vöktu mikla athygli síðastliðið haust. Fréttablaðið ræddi við Guðjón Sigurðsson, formann MND samtakanna sem bundinn er við hjólastól og komst sökum lélegs aðgengis í bíóhúsinu ekki á mynd um ófatlaða og fatlaða listamenn í október síðastliðnum. „Ég var klár að leggja af stað á frumsýninguna sem fulltrúi eins styrktaraðila myndarinnar þegar ég fékk hringingu og mér var sagt að þeir ætluðu að bera þá sem væru í hjólastól inn í salinn. Ég vissi að þeir gætu ekki borið mig inn, stóllinn einn og sér er 175 kíló og ég yfir 100 kíló. Auk þess sem það er bara niðurlægjandi að láta bera sig inn,“ sagði Guðjón af því tilefni í samtali við Fréttablaðið. „Söfnunin felst í sölu aðgöngumiða og korta á sýningar Bíó Paradísar og er hægt að velja um marga möguleika til að styrkja málefnið, allt frá því að kaupa miða fyrir tvo á eina sýningu upp í tíu ára árskort í Bíó Paradís,“ segir í tilkynningu frá bíóhúsinu. Í september síðastliðnum sagði Fréttablaðið frá því að bíóhúsið hefði sótt um tveggja milljón króna styrk til þess að bæta aðgengi fyrir fólk sem bundið er við hjólastól. Það fjármagn fékkst ekki og því hefur verið ákveðið að fara þessa fjármögnunarleið.Sjá einnig: Fatlaður komst ekki á mynd um fatlaðaEina listræna kvikmyndahús landsins „Bíó Pardís hefur unnið með Ferilnefnd fatlaðra hjá Reykjavíkurborg að greiningu og tillögum að úrbótum og er áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga rúmar 6,5 milljónir króna,“ segir í tilkyninningunni. „Verkefnið er mun stærra en húsið ræður við með rekstrinum og var því ákveðið að hefja söfnunina. Öllum ágóða verður varið í að setja inn lyftur og koma fyrir salerni sem er aðgengilegt fólki í hjólastólum.“ Þar segir jafnframt að verkfræðistofan Mannvit komi til með að annast framkvæmdir. Sjá einnig: Þurfa tvær milljónir í bætt aðgengi„Bíó Paradís stendur fyrir afar fjölbreyttri starfsemi og er vonast til að söfnunin hljóti góðar viðtökur til að hægt sé að bæta aðgengi allra að húsinu. Um 18.000 leik- og grunnskólanemendur komið á sérstakar sýningar í kvikmyndalæsi sem þróaðar hafa verið af bíóinu, auk yfir 3.000 framhaldsskólanema. Þar er haldin eina barnakvikmyndahátíð landsins, auk fjölda viðburða og sérsýninga á kvikmyndum frá öllum heimshornum. Bíó Paradís er einnig mikilvægur vettvangur fyrir innlent kvikmyndagerðarfólk en þar hafa verið sýndar yfir 200 íslenskar stutt- og heimildamyndir frá opnun bíósins árið 2010.“ Bíó Paradís er eina kvikmyndahúsið sem eftir er í miðbæ Reykjavíkur. Í tilkynningunni segir jafnframt að það sé eina listræna kvikmyndahús landsins. Sjálfseignarstofnunin Heimili kvikmyndanna ses er rekstraraðili og því er fyrirtækið rekið alfarið án hagnaðarsjónarmiða. Söfnunin er hér.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira