Selja fasteignir án réttinda: Titla sig miðlara, sölufulltrúa eða real estate agent Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. mars 2015 09:46 Ingibjörg Þórðardóttir minnir á að fasteignakaup og -sala sé risaákvörðun þar sem borgi sig að skipta við þá sem hafi tilskilin réttindi. Vísir
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir löggjafann og yfirvaldið hafa sofnað á verðinum. Fjölmargir sem stundi fasteignasölu án leyfis búi sér til aðra titla til að líta vel út gagnvart kaupendum og seljendum. „Það er af því þeir mega ekki kalla sig fasteignasala,“ sagði Ingibjörg í Bítinu í morgun aðspurð hvers vegna aðrir titlar séu að skjóta upp kollinum. Ýmist titli fólk sig fasteignasala upp á ensku eða styðjist við titla á borð við sölufulltrúa og fasteignamiðlara. „Þetta er lögverndað starfsheiti. Það má enginn kalla sig fasteignasala án þess að hafa fengið leyfi ráðuneytis,“ segir Ingibjörg. Hún minnir á að um fjögurra missera nám sé að ræða við Endurmenntun Háskóla Íslands. Auk þess þurfi að uppfylla fleiri skilyrði. Stúdentspróf eða sambærileg menntun sé nauðsynleg.Fasteignasölur sópi til sín sölufulltrúum „Til að öðlast starfsréttindi þarf að hafa unnið í tólf mánuði á fasteignasölu undir handleiðslu löggilts fasteignasala,“ segir Ingibjörg. Auk þess þurfi viðkomandi að vera lögráða, hafa staðist próf fyrir fasteignasala og kaupa sérstaka starfsábyrgðartryggingu. Ingibjörg segir þá sem reka fasteignasölur meðal annars hafa sópað inn til sín sölufulltrúum. Hins vegar sé það svo að í lögunum komi skýrt fram að réttindalaus megi ekki koma að vinnu við fasteignasölu, skoðun, skjalagerð og öðru því um líkt. „Ef fólk kýs að eiga viðskipti við ákveðna aðila þá er það bara þannig. En það ætti að gæta sín á því að þeir eru réttindalausir.“ Þó sé allt í lagi að ráða aðstoðarfólk á fasteignasölur til að sinna bókhaldi, svara í símann og ná í kaffi. Fasteignakaup sé hins vegar ein stærsta ákvörðun fólks á lífsleiðinni. Fólk sé að binda sig fjárhagslega til allt að fjörutíu ára og ætti að láta fagfólk um að sinna viðskiptunum.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira