Hundruðir virkjana en áhrifin ókönnuð Svavar Hávarðsson skrifar 24. mars 2015 07:00 Mynd/Magnús Jóhannsson
Umhverfisáhrif smárra vatnsaflsvirkjana á Íslandi eru lítt rannsökuð, og sérstaklega áhrif á lífríkið. Margar þeirra ekki tilkynningarskyldar til þar til bærra yfirvalda. Þó liggur fyrir að áhrif þeirra eru umtalsverð og nauðsynlegt að bæta alla umgjörð er þær varðar. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar Veiðimálastofnunar á smávirkjunum og áhrifum þeirra á lífríki í vatni, en það eru þau Halla Margrét Jóhannesdóttir, líf- og umhverfisfræðingur, og Magnús Jóhannsson, fiskifræðingur, sem stóðu að rannsókninni. Halla Margrét segir að áhrif vatnsaflsvirkjana á vatnalíf sé vel þekkt. Nefnir hún breytingar á samsetningu fiskstofna, breytingar á búsvæðum og vatnsgæðum sem og skerðingu á hrygningar- og uppeldissvæðum, rennslisháttum og samfellu áa. „Þetta getur verið í sumum tilfellum góður kostur, en það fer eftir lífríkinu. En þetta er bara aldrei skoðað. Það eru fyrirtæki og verkfræðistofur sem fara til mælinga og þá á hagkvæmninni og verið er að veita aðstoð við fjármögnun og uppsetningu virkjana. En nær aldrei er hugað að lífríkinu,“ segir Halla Margrét og bætir við að sérstaklega eigi þetta við um minnstu virkjanirnar sem eru ekki tilkynningaskyldar og mönnum beri ekki að tilkynna neitt um hvað stendur til. Halla Margrét og Magnús velta upp þeirri spurningu hvort ekki sé þörf á að öll áform um virkjanir séu tilkynningaskyld og fyrir því eru nokkrar ástæður. „Í litlum ám og vötnum geta verið mjög mikilvæg svæði; hrygningarsvæði og búsvæði fyrir fiskistofna. Í ljósi þess að verið er að hvetja menn til þess að skoða þennan kost þá viljum við benda á að svona framkvæmdir eru ekki vistvænar í öllum tilfellum og full ástæða til að gaumgæfa þessi mál betur.“ Þau skrifa jafnframt: „Er æskilegra að dreifa umhverfisáhrifum vatnsaflsvirkjana á mörg svæði eða að þau séu á færri svæðum og um leið meiri á hverju þeirra um sig,“ en innan virkjanageirans eru uppi mismunandi skoðanir um hvort sé umhverfisvænna að þróa margar litlar virkjanir eða fáar stórar. Samkvæmt skilgreiningu Evrópusambandsins og evrópskum samtökum um smávirkjanir (ESHA) flokkast virkjanir sem hafa uppsett afl undir 10MW sem smávirkjanir. Gagnagrunnur Orkustofnunar geymir upplýsingar um tæplega 600 smávirkjanir sem hafa verið byggðar á árunum 1904 til 2014. Margar þeirra hafa verið lagðar niður en árið 2014 voru rétt um 250 smávirkjanir í rekstri. Tæpur helmingur þeirra er 60 ára eða eldri. Á árunum 2000 til 2014 voru byggðar um 40 smávirkjanir. Samanlagt vatnsafl þessara virkjana er um 75 MW en samanlagt uppsett afl vatnsaflsvirkjana á Íslandi eru um 1.950 MW. Því eru smávirkjanir með um 3,8% af uppsettu vatnsafli á Íslandi.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira