Leita skýringa á því af hverju refastofn hrundi Svavar Hávarðsson skrifar 24. mars 2015 07:00 Fjölmörg hræ fundust á Hornströndum sem er mjög sjaldgæft. Mynd/Vilhelm
Refastofninn á Hornströndum hrundi niður sumarið 2014 og er ástand hans svipað og það var á áttunda áratug síðustu aldar þegar hann var í lágmarki. Ástæðurnar eru óljósar en greinilegt að refastofninn á Hornströndum er ekki eins stöðugur og áður hefur verið talið. Ester Rut Unnsteinsdóttir, spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, fjallaði nýlega á Hrafnaþingi NÍ um rannsóknir á refastofninum á Hornströndum. Ester lýsti því að öll árin sem hún hefur stundað rannsóknir á Hornströndum hefur stöðugleiki verið einkennandi fyrir svæðið; bæði í fjölda dýra og afkomu. Í byrjun síðasta sumars virtist allt með felldu. Í júlí og ágúst var hins vegar ljóst að got hafði misfarist hjá mörgum pörum sem hafði aldrei gerst frá því að rannsóknir hófust. Á litlu svæði í Hornvík fann Ester tíu hræ, og vitað var um fleiri annars staðar á svæðinu. „Þetta var mjög sláandi,“ sagði Ester sem fór í gegnum gamlar veiðiskýrslur til að leita heimilda um eitthvað svipað. Þær fann hún ekki, nema á einum stað þar sem veiðimaður undirstrikaði í undrun sinni að hafa fundið hræ yfirleitt. Ester bætti við að þau tíu hræ sem hún fann gefi til kynna að þau hafi verið mun fleiri, en veiðiskýrslur benda þó til þess að sveiflur hafi verið í stofninum fyrr á árum. En hverjar er skýringarnar? Íslenski stofninn virðist sveiflast með náttúrulegum hætti á löngum tíma, sagði Ester sem veiðitölur virðast sýna. Frjósemi refs er stöðug, og skýrir þetta ekki. Mikið sjófuglavarp er á Hornströndum. Ein hugsanleg skýring sem vísindamenn vinna með er að veðurlag síðla vetrar og vorhret gætu hafa haft neikvæð áhrif á varpárangur fugla og þar með óbein áhrif á tímgunarárangur refa. Fundist hefur hátt magn kvikasilfurs í tófum við ströndina á Íslandi. Verið gæti að mengun sé meiri á þessu svæði en annars staðar þar sem uppistaða fæðunnar eru sjófuglar og sjórekin spendýr, og ekki er hægt að útiloka sjúkdóma. Þá bendir margt til þess að ágangur ferðamanna hafi neikvæð áhrif á afkomu yrðlinga á svæðinu, og matargjafir hafi skekkt afkomumöguleika dýranna á milli árstíða.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira