Verjendur rukka fyrir það sem út af stendur Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 25. mars 2015 11:00 Tímagjald verjenda er nú 16.500 krónur en var áður 10.000 krónur. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður segir um að ræða ásættanlega réttarbót. Mynd/Valli
Dómstólaráð hefur hækkað greiðslur til verjenda í sakamálum með nýjum viðmiðunarreglum. Tímagjald verjenda er nú 16.500 krónur en var áður 10.000. Það er hækkun upp á 65 prósent. Málsvarnarlaunin skulu þó aldrei vera lægri en 78.000 krónur en áður var lágmarksfjárhæðin 46.700. Lágmarksþóknun verjenda og réttargæslumanna fyrir að mæta við fyrirtöku hjá lögreglu eða dómara hækkar úr 20.000 kr. í 52.000 kr., sem er um 160 prósenta hækkun. Standi fyrirtaka lengur en í tvær klukkustundir greiðist hver byrjuð klukkustund fram yfir það með 16.500 krónum samkvæmt viðmiðunarreglum dómstólaráðs. Fréttastofa ræddi við Ingimar Ingimarsson, framkvæmdastjóra Lögmannafélagsins, sem segir um að ræða löngu tímabæra leiðréttingu, launin hafi verið óbreytt í tíu ár og í raun lengur. „Þetta er löngu tímabær leiðrétting,“ segir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður, sem hefur starfað mikið sem verjandi í sakamálum. Vilhjálmur segir óskastöðuna auðvitað þá að verjendur fengju greitt fyrir tíma sinn samkvæmt sinni eigin gjaldskrá. „En ég tel að þessi réttarbót sem hefur orðið núna sé mjög ásættanleg, þetta hefur færst mun nær raunverulegu tímagjaldi heldur en það var.“ Vilhjálmur segir það töluvert algengt meðal lögmanna sem sinna verjendastörfum að rukka skjólstæðinga sína um mismuninn á tímagjaldi sínu og dæmdum málsvarnarlaunum. Algengt tímagjald verjenda er í kringum 25 þúsund krónur. „Ég held að það sé að verða æ algengara. Það er bæði vegna þess að gjaldið var lágt og svo eru auðvitað sérfræðingar í rekstri sakamála rétt eins og í rekstri einkamála og það er mjög eðlilegt að það sé svipað eða sambærilegt tímagjald hvort heldur sem verið er að reka sakamál eða einkamál. Þar að auki eru hagsmunir skjólstæðinga í sakamálum oft gríðar-legir og þá ef til vill eðlilegt að það sé rukkað fullt gjald,“ segir Vilhjálmur. Greiðslur fyrir dæmigert refsimál Þeir verjendur í sakamálum sem Fréttablaðið ráðfærði sig við sögðu hefðbundið sakamál, sem ekki er of flókið, taka í kringum 25-30 klukkustundir allt í allt.Oft væru mætingar til lögreglu tvær, sem stæðu yfir í um tvær klukkustundir hvor. Allt í allt fari um 5-10 klukkustundir í málið þegar það er á rannsóknarstigi.Sé ákært í málinu bætast við 10-15 klukkustundir, en þar er innifalið mætingar í fyrirtökur fyrir dómi, undirbúningur aðalmeðferðar, málflutningur, dómsuppsaga og svo fleira eins og viðtöl, símtöl, tölvupóstsendingar og svo framvegis.
Mest lesið „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Sjá meira