Merktu 19.046 fugla og bættu Íslandsmet Svavar Hávarðsson skrifar 26. mars 2015 07:00 Allar merkingar á íslenskum fuglum falla undir talningarnar. 40 hafarnarungar voru merktir 2014. Mynd/Gunnar Þór Hallgrímsson
Sett var met í fuglamerkingum á Íslandi árið 2014. Alls voru merktir 19.046 fuglar af 79 tegundum og eru það fleiri nýmerkingar á einu ári en nokkru sinni fyrr. Guðmundur A. Guðmundsson, dýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, annast umsjón með fuglamerkingum hérlendis, segir að merkingarstarfið sé að mestu leyti borið uppi af áhugafólki, þó talningar falli líka undir skipulögð verkefni. Met síðasta árs hvíli þungt á fjölda sjálfboðaliða, en 51 sendi inn skýrslu í fyrra. Sá stórtækasti, Sverrir Thorstensen á Akureyri, merkti 3.555 fugla í fyrra, en margir sem þessu starfi sinna hafa gert svo um áratugaskeið, segir Guðmundur.Óskar J. Sigurðsson, kenndur við Stórhöfða, hætti merkingum á árinu. Óskar hóf merkingar árið 1953 og merkti á þeim 62 árum „sem hann handlék merkingatöngina“ um 93.000 fugla, sem er með ólíkindum segir Guðmundur, en mikil þekking fæst með merkingum fuglanna – margt fæst ekki öðruvísi þrátt fyrir nýjustu tækni. Fuglar hafa verið merktir á Íslandi síðan árið 1921. Alls hafa verið merktir 668.144 fuglar af 153 tegundum, mest af snjótittlingi eða tæplega 80 þúsund fuglar. Mest var merkt af auðnutittlingi í fyrra en þar á eftir komu snjótittlingar, skógarþrestir, kríur og rauðbrystingar. Tvær tegundir voru merktar í fyrsta sinn hér á landi; peðgrípur og mistilþröstur. Af 104 endurheimtum erlendra merkja voru 64 frá Bretlandseyjum, 24 frá Noregi, 10 frá Hollandi, tvö frá Frakklandi og Þýskalandi, eitt merki frá Svíþjóð og annað frá Ghana. Þetta er í fyrsta sinn sem merki frá merkingastöðinni í Ghana endurheimtist á Íslandi.
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fleiri fréttir „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss Sjá meira