Erfðaspegill þjóðarinnar er öðrum fyrirmynd Linda Blöndal skrifar 25. mars 2015 19:30
Íslensk erfðagreining kynnti í dag rannsóknir sem varpa nýju ljósi á þróun og starfsemi gena og áhrif þeirra á sjúkdóma. Upplýsingarnar má nýta nú þegar í íslensku heilbrigðiskerfi að sögn Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins og hann segir erlend ríki sækjast eftir sams konar þekkingu. Nákvæmari erfðamengi Fyrirtækið birtir í dag fjórar greinar samtímis í vísindatímaritinu Nature Genetics, einu því fremsta á sviði erfðavísinda í heiminum og eru þær byggðar á rannsóknum á erfðamengi meira en hundrað þúsund Íslendinga. Þar er gerð nákvæmari grein en áður fyrir raðgreiningu erfðaefnis og erfðabreytileika, stökkbreytingu gena og hlutverki þeirra. Byggt er sérstaklega á greiningu erfðaefnis 2600 Íslendinga. Notkunarmöguleikar orðnir að veruleika „Það sem mestu máli skiptir held ég að þegar kemur að þessum fjórum greinum, er að gera sér grein fyrir því að þessar hugmyndir um að það sé hægt að afla það mikilla gagna um erfðir sjúkdóma og það sé orðið hægt að nota þau til að hafa áhrif á heilbrigðisþjónustuna, að sú hugmynd er orðin að raunveruleika. Staðreyndin er sú að við Íslendingar gætum ef við vildum, því þetta er bara spurningin um hvað við viljum gera, en við gætum ef við vildum byrjað strax í dag að nota erfðafræðina á þann hátt sem aðrar þjóðir reikna með að þær geti gert eftir fimm til tíu ár", sagði Kári í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Myles Axton ritstjóri Nature Genetics skrifar í leiðara ritsins að þarna birtist nákvæmasta erfðamynd sem sé til af einni þjóð sem hvergi sé annars staðar að finna og sé öðrum þjóðum fyrirmynd. Aðrar þjóðir vilji slíka genakortlagningu á þjóðum sínum eins og Ísland hefur gert.Siðferðilegar spurningarFram kemur að meira en tvö þúsund Íslendingar beri erfðabreytileika í BRCA2 geni sem margfaldar áhættu á að fá krabbamein. Kári segir siðferðilegt spursmál hvernig nota eigi slíkar upplýsingar en þær séu til reiðu fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi nú strax. „Það eru þeir sem hafa áhyggjur af því að þegar farið verður að fara að nota erfðaupplýsingar af þessari gerð að þá fari menn að vega að rétti fólks til að vita ekki um eigin áhættu á sjúkdómum", segir Kári sem er viss um að það náist sátt um siðfræðilegan hluta þess að nota upplýsingarnar í dag. Erum ein með gögn um heila þjóð „Það er fjöldinn allur af þjóðum sem stefna á eða eru að reyna að komast á þann stað sem við erum á núna á Íslandi", segir Kári og bæði Bandaríkjastjórnvöld og Bretar séu með áætlanir sem miði að því. "Við komumst þangað fyrst, í því er held ég stóra fréttin í þessu".
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira