Fjórtán manns sagt upp hjá Fjarðalaxi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. mars 2015 19:12 Frá Patreksfirði Vísir/Egill Aðalsteinsson
Fjórtán starfsmönnum sem starfa við vinnslu og pökkun hjá Fjarðalaxi á Patreksfirði verður sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Er þetta gert vegna þess að flytja þarf vinnsluna í stærra húsnæði þar sem vinnsluhús félagsins á Patreksfirði mun ekki anna því magni sem fyrirhugað er að slátra frá og með næsta hausti. Þá skapast óvissa um hvar vinnslan verður staðsett og þarf fyrirtækið því að grípa til uppsagna. Fjarðalax vonast þó til að geta boðið starfsfólkinu ný störf um leið og ljóst verður hvar starfsemin verður, en sjá má tilkynningu fyrirtækisins í heild sinni hér að neðan:Vegna aukinna umsvifa Fjarðalax á Vestfjörðum mun vinnsluhús félagsins á Patreksfirði ekki anna því magni sem fyrirhugað er að slátra frá og með næsta hausti. Því verður að grípa til nauðsynlegra ráðstafana og flytja vinnsluna í stærra húsnæði. Unnið er að því að tryggja áframhaldandi vinnslu á afurðum fyrirtækisins.Sökum tímabundinnar óvissu um hvar þessi hluti starfseminnar verður settur niður reynist nauðsynlegt að segja upp 14 starfsmönnum sem nú starfa við vinnslu og pökkun á Patreksfirði frá og með næstu mánaðamótum. Vonast er til að hægt verði að bjóða þeim ný störf um leið og ljóst verður hvar starfsemin verður. Þess er vænst að það skýrist á næstu vikum. Starfsemi í kringum laxeldisstöðvar Fjarðalax verður áfram á Patreksfirði, Tálknafirði og Arnarfirði. Í apríl mun Fjarðalax taka í notkun nýtt skip sem notað er við vinnsluna og búið að ráða starfsmenn á það. Samhliða er verið að ganga frá samningum við þriðja aðila um þjónustu á kvíum sem mun hefja starfsemi á Vestfjörðum á næstunni. Það mun auka enn við þann mannskap og skipakost sem starfar við eldi félagsins á svæðinu.Útlit er fyrir að umfang laxeldis á Vestfjörðum vaxi hröðum skrefum á næstu árum innan vébanda nokkurra laxeldisfyrirtækja á svæðinu. Þessi fyrirséði vöxtur er forsenda þess að framleiðslukostnaður hérlendis verði sambærilegur við það sem samkeppnisþjóðir okkar búa almennt við. Það er skoðun forsvarsmanna Fjarðalax að kostnaðarhagræði verði best og fyrst náð með því að aðilar sameinist um slátrun og vinnslu. Eftir því verður leitað af hálfu Fjarðalax í tengslum við flutning á vinnslu félagsins.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira