Inflúensan að ganga niður: Hátt í 30 þúsund smituðust sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 26. mars 2015 12:00 Haraldur Briem, sóttvarnalæknir. vísir/gva
Gera má ráð fyrir að hátt í 30 þúsund manns hafi smitast af inflúensu það sem af er þessu ári. Inflúensan var heldur skæð í ár ef miðað er við síðustu tvö ár en líkur eru á að bólusetningar hafi ekki virkað sem skyldi. Inflúensan náði hámarki í febrúar en er nú að ganga niður, að sögn Haralds Briem, sóttvarnalæknis. „Þeir sem hafa greinst með inflúensulík einkenni það sem af er ári eru 2980. Þumalputtareglan er sú að margfalda þá tölu með tíu, því það eru ekki allir sem leita til læknis,“ segir Haraldur. Á síðasta ári greindust 1307 með inflúensuna og þar síðasta ári 2871. Hún var verst árið 2009 þegar 10 þúsund greindust með veiruna. „Hún er ekkert svo frábrugðin frá ári til árs en hún er heldur meiri en í fyrra. Einkennin eru mjög áþekk, menn veikjast skyndilega og finna fyrir höfuðverk, vöðvaverkjum, hósta og hita. Aðrar pestir læðast meira að fólki, það fer að kvefast og svona en inflúensan kemur svolítið eins og kjaftshögg,“ segir hann. Aðspurður hvort það sé þess virði að fara í bólusetningu við inflúensu segir hann svo vera. Þrátt fyrir það að þær virki ekki alltaf fullkomlega dragi þær verulega úr einkennum.
Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Fleiri fréttir Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Sjá meira