Látinn í íbúð sinni í Reykjavík í tvo mánuði Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 28. mars 2015 19:45
Rúmlega fertugur karlmaður fannst látinn í íbúð sinni í fjölbýlishúsi í Reykjavík í gær. Talið er að maðurinn hafi verið látinn í allt að tvo mánuði áður en hann fannst. Lögreglan segir sjaldgæft að mál eins og þetta komi upp. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til að fjölbýlishúsi í Laugarneshverfinu í gær. Þá hafði aðstandandi mannsins farið inn í íbúið hans og fundið hann þar látinn. Ekki er talið að dauða mannsins hafi borið að með saknæmum hætti en hann bjó einn. Nágrannar mannsins höfðu samband við systkini hans eftir að lykt tók að berast frá íbúðinni. Þá hafði safnast töluvert magn af pósti fyrir í póstkassa hans. Talið er að maðurinn hafi verið látinn í íbúðinni í um tvo mánuði áður en hann fannst. Í samtali við fréttastofu í dag sagði Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sjaldgæft að mál sem þessi komi upp þar sem fólk hafi verið látið í langan tíma í heimahúsið áður en það finnst. Níu íbúðir eru í húsinu þar sem maðurinn bjó. Nágrannar mannsins sem að fréttastofa ræddi við í dag eru slegnir. Þeir bera honum vel söguna og segja manninn hafa verið indælan en mikinn einfara. Síðustu vikur hafi lykt tekið að berast um ganga hússins en í fyrstu hafi þeir ekki áttað sig á hvaðan hún kæmi. Fyrir helgina töldu þeir líklegast að hún kæmi úr íbúð mannsins og þar sem hann svaraði ekki var ákveðið að hafa samband við systkini hans sem kom á staðinn og kallaði til lögreglu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira